ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Litar sögulegar myndir

Ung listakona frá Svíþjóð vekur athygli

Anna Frank, eitt af fórnarlömbum Helfararinnar.

Theodore Roosevelt, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna.

Operation Crossroads kjarnorkutilraun við Bikini Atoll

Rithöfundurinn Mark Twain í lit.

Charles Darwin, höfundur þróunarkenningarinnar.

Abraham Lincoln, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna.

Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
12:00 › 4. febrúar 2012
  • Theodore Roosevelt, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna.

    Theodore Roosevelt, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna.

  • Operation Crossroads kjarnorkutilraun við Bikini Atoll

    Operation Crossroads kjarnorkutilraun við Bikini Atoll

Fara í myndagallerý →

Sanna Dullaway, 21 árs gömul listakona frá Svíþjóð, hefur tekið sig til og litað gamlar sögulegar ljósmyndir. Dullaway byrjaði á því að lita gamlar svarthvítar ljósmyndir á síðasta ári og hefur eiginlega ekki getað stoppað síðan. Hún hefur meðal annars litað mynd af Önnu Frank, Theodore Roosevelt og Mark Twain.

„Ég vildi ekki bæta eða skipta út upphaflegu myndunum, sem ég ber virðingu fyrir,“ segir hún í samtali við tímaritið Good. „Ég held að ef fólk hefði getað valið að taka ljósmyndir í lit fyrir 80 árum hefðu margir valið sér það.“

Dullaway er sjálflærð á myndvinnsluforritið Photoshop sem hún notar til að gæða gömlu myndirnar lífi. „Mér persónulega finnst að með því að lita myndirnar sé ég að færa söguna nær okkur, hún verður meira lifandi og áþreifanleg,“ útskýrir hún um af hverju hún er að fást við verkefnið.




Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?