Steiktur matur er ekki jafn slæmur fyrir hjartað og við höldum. Það er að segja ef við notum ólívu- eða sólblómaolíu. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sérfræðinga.
Vitað er að matur verður enn kaloríuríkari steiktur því hann drekkur í sig fituna við steikinguna. Slíkur matur hækkar blóðþrýstinginn og getur valdið of háu kólesteróli sem getur svo valdið hjartasjúkdómum.
Vísindamenn við Autonomous-háskólann í Madrid spurðu yfir 40 þúsund Spánverja út í matarvenjur sínar. Enginn þeirra hafði einkenni hjartasjúkdóma þegar rannsóknin hófst. Vísindamenn fundu engin tengsl milli neyslu á steiktum mat og hjartasjúkdóma og telja ástæðuna tegund olíunnar sem Spánverjar nota.
Michael Leitzmann, við Regensburg-háskólann í Þýskalandi, ítrekar að þótt rannsóknin hafi sýnt fram á að steiktur matur þurfi ekki endilega að vera óhollur fyrir hjartað sé ekki sniðugt að steikja fisk og franskar kartöflur í hvert mál.
„Rannsóknin var gerð á fólki sem lifir á fæði sem kallast Miðjarðarhafsfæði og hefur lengi verið hyllt fyrir hollustu. Miðjarðarhafsfæði er fitulítið, ríkt af trefjum, ávöxtum og grænmeti sem og fiski. Það er ekkert sem segir að aðrar þjóðir njóti góðs af þessum niðurstöðum.“
Victoria Taylor hjá bresku hjartasamtökunum tekur í sama streng. „Fituríkur matur er alltaf kaloríuríkari, sama hvernig hann er meðhöndlaður, og getur leitt til offitu sem svo getur valdið hjartasjúkdómum. Það besta fyrir hjartað er að borða fjölbreyttan mat og mikið af ávöxtum og grænmeti.“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Ávaxtasykur gerir okkur heimsk
Elsti jógakennari heims er 91 árs
15 leiðir til að brenna meiru
Hefði orðið útbrunninn karl í Hollywood
Kaffidrykkjufólk lifir lengur
