Fæstar okkar geta leyft sér að borða jafn óhollan mat og jafn óreglulega og við gerðum á okkar yngri árum. Dr. Pamela Peeke, höfundur sjálfshjálparbókarinnar Fight Fat Over 40, segir efnaskipti líkamans breytast um fimmtugsaldurinn – með öðrum orðum hæfileikinn til að brenna hitaeiningum minnkar.
Peeke segir að með aldrinum slakni á vöðvum auk þess sem aukið andlegt álag verði til þess að við innbyrðum fleiri hitaeiningar en við þurfum þegar við ættum í rauninni að hreyfa okkur meira og passa betur upp á skammtastærðina. Peeke heldur því einnig fram að við getum viðhaldið eða komist í fyrra form en það þarfnist meiri vinnu en áður. Hér eru ráð dr. Pamelu Peeke í baráttunni við skvapið eftir fertugt.
Breyttu um lífsstíl
„Eftir að konur ná ákveðnum aldri breytast líkamar þeirra. Fagnaðu því og endurskoðaðu lífsstílinn þinn. Frjósemi, kynhvöt, skap, húð, hár – allt býr sig nú undir næstu 40 árin í lífinu,“ segir Peeke sem segir húð fertugrar konu allt öðruvísi en tíu árum áður. Hún segir hægjast á efnaskiptum um 5% á áratug í það minnsta frá tvítugu vegna eðlilegar vöðvarýrnunar. „Því minni vöðvamassa sem þú hefur því færri kaloríum brennir líkami þinn. Í kringum tvítugt þurfti líkaminn á 2.000 kaloríum að halda á dag en við 45 ára aldur gætir þú þurft að minnka daglega kaloríuinntöku um 300. Ef þú heldur áfram að innbyrða sama magnið muntu þyngjast um 13 kíló á ári.“
Heilbrigður hugur
Peeke segir mikið af þeirri fitu sem við söfnum á okkur á þessum aldri safnast á mittið. „Ég kalla þetta stressfituna því hún gefur þér orku til að takast á við erfiðar aðstæður. Of mikið af henni er hins vegar hættulegt og eykur líkur á hjartasjúkdómum, sykursýki og krabbameini og hækkar blóðþrýsting og kólesteról. Ekki reyna að svelta þig til að ná árangri. Ef líkamanum finnst hann ekki fá nóg hægir hann enn frekar á brennslunni. Heilbrigður líkami hefst á heilbrigðum huga. Mundu að það að vera í góðu formi er bæði hollara og lítur betur út en það að vera grannur.“
Stress og matur
Samkvæmt Peeke eru margar konur sem þjást af offitu eftir fertugt gjarnar á að borða of mikið af óhollustu seinnipart dags og á kvöldin. „Álag og stress er oftast mest seinnipartinn sem getur valdið vanhugsuðu og tætingslegu áti. Fólk þambar kaffi og gúffar í sig í sykruðum mat í leit að orku. Átið veldur vonleysi sem leiðir svo til enn meira áts. Vertu viðbúin og birgðu þig upp af hollu snakki þegar þú veist að dagurinn á eftir að vera erfiður.“
Minni skammtar
Það er auðveldara að fylgjast með skammtastærð en kaloríufjölda. Skoðaðu til dæmis ráðlagðan skammt á morgunkornspakkanum þínum. Þér gæti fundist hann lítill en svona lítur víst einn skammtur út. Prófaðu líka að nota minni diska en vanalega. Þannig verður erfiðara að borða yfir sig.
Meiri hreyfing
Peeke segir konur yfir fertugu þurfa á 45 mínútna hreyfingu fimm til sex sinnum í viku og hálftíma þrekæfingum tvisvar á dag að halda. Margar konur hafa engan tíma til að hreyfa sig en að sögn Peeke dugar að stela nokkrum mínútum hér og þar yfir daginn. „Farðu í góðan göngutúr í hádeginu, hjólaðu heim úr vinnunni og skelltu þér í sund,“ segir Peeke sem mælir með því að konur lyfti lóðum.
Ekki gefast upp
Við tökum á stressi með mismunandi hætti. Á meðan sumar koma ekki niður bita þegar mikið liggur við verða aðrar óstöðvandi í sykrinum. „Að vera feit snýst ekki aðeins um val á mat heldur hvernig þú bregst við þegar lífið er erfitt. Flestar okkar kannast við óvæntar uppákomur sem setja háleit heilsumarkmið okkar í uppnám. Þá er mikilvægt að gera sér grein fyrir að það varst ekki þú sem gafst upp. Taktu á erfiðleikunum og haltu svo áfram.“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Ávaxtasykur gerir okkur heimsk
Elsti jógakennari heims er 91 árs
15 leiðir til að brenna meiru
Hefði orðið útbrunninn karl í Hollywood
Kaffidrykkjufólk lifir lengur
