ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Kaupóðar vinkonur rýma til í fataskápunum

Halda fatamarkað á Bakkus
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:12 › 3. febrúar 2012
María Lilja og vinkonur ætla að halda fatamarkað á laugardaginn.

María Lilja og vinkonur ætla að halda fatamarkað á laugardaginn.

Þær María Lilja Þrastardóttir, Krista Hall og Anika Laufey Baldursdóttir standa fyrir fatamarkaði á laugardaginn. Markaðurinn fer fram á Bakkus sem nýlega var fluttur á Laugaveg 22.

Stöllurnar segjast vera að tæma fataskápana sína vegna plássleysis, þær séu allar kaupóðar og ætli þess vegna að rýma til. Þær lofa góðum verðum en á markaðnum verða meðal annars í boði „vintage“ gullmolar eins og kjólar, skór, pelsar, kápur og fleira. Þær eiga það sameiginlegt að hafa allar starfað í búðum sem selja notuð föt og verður því eflaust úr nægu að moða á markaðnum.

Markaðurinn hefst klukkan 14 og stendur til klukkan 17.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?