Cape Town í Suður Afríku er sú borg heims sem laðar að sér hlutfallslega flesta samkynhneigða ferðamenn en velflest þau lönd sem taka vel á móti samkynhneigðum njóta þess í auknum ferðamannafjölda. Sá fjöldi getur talið tug- og hundruðir þúsunda.
Samkynhneigðir ferðast í ríkum mæli og geta haft töluverð áhrif á tekjur af ferðamönnum í þeim löndum sem vel taka á móti þeim
Samkynhneigðir eru því sívaxandi partur af ferðamönnum í veröldinni og sérstaklega þykir sannað að þeir sem leyfi hafa í heimalandinu til að gifta sig ferðast í kjölfarið eins og aðrar hefðbundnar fjölskyldur og oft á tíðum með börn með sér úr fyrri samböndum.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í stórri skýrslu Alþjóða ferðamálastofnunarinnar, UNWTO, en sú er fyrsta skýrslan þar sem litið er sérstaklega á ferðalög samkynhneigðra og áhrif þeirra ferðalaga á þau lönd sem það fólk kýs að heimsækja. Þó samkynhneigðir geti tæknilega heimsótt sömu lönd og allir aðrir eru víða ströng viðurlög við að sýna samkynhneigð sína opinberlega og til eru lönd þar sem slíkt er ávísun á dauðadóm.
Skýrslan, sem unnin var í samvinnu við International Gay & Lesbian Travel Association, sýnir að ferðalög samkynhneigðra geta skipt töluverðu máli í stóru myndinni enda tekjur margra homma og lesbía í vestrænum löndum á pari við það sem gerist hjá hefðbundnum fjölskyldum. Það er því ekki eftir minna að slægjast þar fyrir lönd sem vilja auka ferðamannastraum almennt.
Í Bandaríkjunum skjóta menn á að samkynhneigðir séu í heild um fimm prósent allra ferðamanna en þessi tala hækkar verulega í tilviki Cape Town. Þar telja hommar og lesbíur fimmtán prósent allra erlendra ferðamanna. Munar aldeilis um minna.
Lesa á Fararheill.is



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Wow Air undirbýður Iceland Express
40 þúsund krónur fyrir fjölskylduna í Disneyland
Samkeppni á suðustigi í fluginu
Ef aðeins væru héðan ferðir til Grikklands
Sértilboð til Stuttgart og Zurich
