ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Wow Air bítur frá sér

Frétt af
17:44 › 20. febrúar 2012
  • None

Engum blöðum þarf lengur að fletta um gildi þess að hafa rjúkandi virka samkeppni. Úttekt Fararheill leiðir í ljós að í fimm handahófskenndum tilfellum af sex alls er hið nýja flugfélag Wow Air ódýrara en samkeppnisaðilarnir á leiðum til London og Kaupmannahafnar.


Nýjasta flugfélag landsins kemur inn með usla samkvæmt úttekt Fararheill. Ódýrastir í fimm skipti af sex


Hafi landinn ekki þegar gert upp hug sinn með vor- og sumarferðir sínar er líklegt að flestir fari að hugsa sér til glóðar í þeim efnum því reynslan sýnir að flugfargjöld hækka jafnt og þétt því sem nær dregur. Margir ætla einungis til London eða Kaupmannahafnar og enn aðrir skipuleggja sín eigin ferðalög og fljúga þá flestir áfram frá þessum sömu borgum.


Í öllu falli virðist vænlegast að versla við Wow Air eins og sést á meðfylgjandi töflum hér að neðan. Um algjörlega handahófskenndar dagsetningar er að ræða í öllum tilvikum í júní, júlí og ágúst en lengri samanburður var ekki mögulegur þar sem áætlun Wow Air nær ekki lengra að sinni.


Þær sýna þó glögglega að hinu nýja flugfélagi er að takast að skjóta gömlu hundunum ref fyrir rass í fimm tilvikum af sex alls.


Það telur ritstjórn Fararheill vera dágott mál fyrir neytendur í landinu enda sennilega teljandi á fingrum einhents þeir sem eru á þeirri skoðun að virk samkeppni hafi ríkt í flugi hérlendis undanfarin ár.


Tafla 1 sýnir kostnað á einstakling báðar leiðir til London á þremur mismunandi dagsetningum í sumar miðað við almennt farrými.*


Til London og heim aftur er Icelandair dýrast í tveimur tilfellum, Wow Air einu sinni en Iceland Express aldrei


Tafla 1 sýnir kostnað á einstakling báðar leiðir til Kaupmannahafnar á þremur mismunandi dagsetningum í sumar miðað við almennt farrými.*


Ekkert fer hér milli mála. Wow Air býður ódýrasta flugið í öll skiptin sem um ræðir.


* Hafa skal í huga að verðbreytingar eru örar og fyrirvaralausar hjá flugfélögunum og þótt hér komi eitt flugfélag betur út þarf það ekki að vera raunin á öllum dagsetningu. Stikkprufurnar teknar kl. 14 mánudaginn 20. febrúar 2012.



Lesa á Fararheill.is



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?