ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Stefán Hrafn bakaði köku ársins í annað sinn

Sala á kökunni hefst um helgina
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:40 › 2. febrúar 2012
Stefán Hrafn átti einnig köku ársins 2010.

Stefán Hrafn átti einnig köku ársins 2010. Mynd Eyþór Árnason

  • Kaka ársins 2012. Girnileg.

    Kaka ársins 2012. Girnileg.Mynd Eyþór Árnason

Stefán Hrafn Sigfússon, bakari hjá Mosfellsbakarí, á köku ársins 2012 en í sigurlaun hlaut hann peningaverðlaun frá Landsambandi bakarameistara, LABAK, og glæsilega gjafakörfu frá Freyju.

Átján kökur bárust í keppnina sem er metþátttaka en þetta er í annað skiptið á þremur árum sem Stefán Hrafn bakar köku ársins. Hann bakaði einnig köku ársins fyrir árið 2010.

Kakan í ár inniheldur meðal annars ljúffenga karamellu, hnetur og súkkulaði. Að venju er mikið í kökuna lagt, hún er samsett úr mörgum gómsætum lögum og hjúpuð með karamellu- og súkkulaðihjúp, segir í fréttatilkynningu frá LABAK.

Dómarar í keppninni voru Þóra Ólafsdóttir frá Samtökum iðnaðarins, Olga Sigurðardóttir frá sælgætisgerðinni Freyju og Ásgeir Þór Tómasson, deildarstjóri bakaradeildar Hótel- og matvælaskólans.

Sala á kökunni hefst um helgina í bakaríum félagsmanna LABAK um allt land og verður til sölu það sem eftir er ársins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?