„Raddir kvenna heyrast ekki nógu oft,“ segir Guðný Þorsteinsdóttir en hún og eiginmaður hennar hafa hannað smáforrit, eða svokallað „app“ fyrir Iphone, Ipod Touch og Ipad þar sem notendur geta fengið tilvitnun senda á hverjum degi. Í forritinu er að finna tilvitnanir í 366 konur sem allar eiga það sameiginlegt að vera nokkuð þekktar og hafa haft mikið fram að færa, meðal annars íþróttakonur, listakonur, stjórnmálamenn og athafnakonur.
Forritið er fæst endurgjaldslaust og er tilraunaverkefni þeirra hjóna en þau eru bæði tölvunarfræðingar og segir Guðný að þetta hafi verið hálfgert fikt hjá þeim og lærdómur fyrir þau. Forritið heitir „Womens wisdom“ og efni tilvitnanna eða spakmælanna er allt milli himins og jarðar. „Það virkar þannig að það kemur ný tilvitnun á hverjum degi og það eru margvíslegar stillingar sem fylgja því. Þú getur stýrt því hvenær tilvitnunin berst þér og hægt er að áframsenda þau og vísa í þau á Facebook,“ segir Guðný.
Hér eru upplýsingar um það á íslensku



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Stjörnurnar þurfa ekki lengur að óttast að nektarmyndir leki á netið
Google má endurbirta það sem þú vistar á Google Drive
Pebble sigrar heiminn
Meira pláss fyrir minni pening
Nýi Galaxy kynntur
