ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Vertu glaðari!

Nokkur auðveld ráð til að gera lífið léttara og vera glaðari
Viktoría Hermannsdóttir viktoria@dv.is
20:10 › 29. janúar 2012
Fyrsta skrefið í átt að hamingju liggur hjá okkur sjálfum. Horfum á björtu hliðarnar í lífinu.

Fyrsta skrefið í átt að hamingju liggur hjá okkur sjálfum. Horfum á björtu hliðarnar í lífinu.

Janúar og febrúar reynast mörgum erfiðir mánuðir. Á þessum árstíma fara margir í sjálfsskoðun og íhuga hvernig þeir geti breytt lífi sínu til hins betra. Allt byrjar þetta jú hjá okkur sjálfum og það er á okkar valdi að breyta því sem við erum ósátt við í lífi okkar. Það þarf ekki að vera erfitt verk að vera aðeins glaðari og sjá björtu hliðarnar á lífinu.

Ákvörðunin er þín!
Þetta er allt í þínum höndum. Fyrsta skrefið í átt að hamingju er að ákveða að þig langi til þess að vera hamingjusamur/söm. Ákvörðunin þarf að vera tekin af heilum hug og með einbeittum vilja til þess að halda henni til streitu. Það þýðir þó ekki bara að taka ákvörðunina án þess að gera neitt í því – lífið er til þess að lifa því og það er hægt að gera á svo marga skemmtilega vegu.

Vertu þú sjálfur
Það auðveldar þér lífið til muna ef þú hættir að vera í leik og þykjast vera einhver annar en þú ert. Við lifum þessu lífi fyrir okkur sjálf og engan annan. Til hvers þá að þykjast vera einhver annar en maður er?

Leyfðu þér smá sjálfselsku
Oft á tíðum gleymir fólk sjálfu sér. Stundum er nauðsynlegt að leyfa sér smá sjálfselsku og setja sjálfan sig í fyrsta sætið. Maður er nú einu sinni sú manneskja sem maður er hvað mest með, alveg fram á síðustu stundu.

Brjóttu reglurnar
Það er kannski algjör óþarfi að fremja lögbrot en að brjóta reglur stöku sinnum skaðar engan. Líf okkar er oft byggt á skráðum og óskráðum reglum annarra um það hvernig við eigum að haga lífi okkar. Það getur enginn sagt þér hvernig þú átt að lifa nema þú sjálf/ur. Með það að markmiði reyndu að brjóta nokkrar óskráðar reglur og gerðu það sem þú vilt – svo lengi sem það skaðar ekki aðra.

Ögraðu þér
Við erum alltaf hrædd við að fara út fyrir þægindarammann. Það er þó öllum hollt að ögra sjálfum sér og stíga út fyrir hann. Það er frábær tilfinning að takast eitthvað sem maður bjóst ekki við að geta gert.

Leiktu þér
Taktu þér tíma á hverjum degi til að leika þér. Þú heldur kannski að leikur sé eitthvað fyrir börn. Rangt. Leikur eflir gáfur og eykur líkur á því að við léttum lundina. Slepptu af þér beislinu.

Er þetta svona alvarlegt?
Hættum að taka lífinu svona alvarlega og höfum gaman af því. Í staðinn fyrir að velta fyrir okkur hvað allt er slæmt er þá ekki ráðlegra að huga að því sem gott er? Það eru yfirleitt tvær hliðar á öllum málum og því ekki að sjá björtu hliðarnar á tilverunni? Skiptu svartsýninni út fyrir bjartsýnina og reyndu að sjá hlutina á annan veg. Það gæti tekið tíma en en ef það tekst verður lífið svo miklu skemmtilegra.

Losaðu þig við draslið
Af hverju að safna að sér alls konar dauðum hlutum? Oft erum við að geyma alls konar hluti sem skipta okkur engu máli. Margir koma sér í skuldasúpu til þess að geta keypt hluti sem þeir hafa svo enga ánægju af. Hamingjuna er svo sannarlega ekki að finna í einhverjum hlutum. Auðvitað getur verið gaman að eignast fallega hluti en þurfum við virkilega allt þetta dót? Forgangsröðun er hér lykilatriði; hvað virkilega vil ég og þarfnast?

Hættum að vera svona upptekin
Margir eru alltaf svo uppteknir að þeir hafa ekki tíma til þess að gera neitt. Það er þó ekki endilega samasemmerki á milli þess að vera upptekinn og að koma mörgu í framkvæmd. Oft notum við annirnar sem afsökun til þess að takast ekki á við það sem við virkilega viljum gera. Lífið býður ekki eftir okkur, það er í gangi núna og þess virði að lifa því. Af hverju að vera alltaf að bíða eftir að gera hlutina og þá verður það hugsanlega of seint? Lifum í núinu og njótum þess að vera til.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?