ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Það er hægt að deyja úr hjartasorg

Sá sem missir maka sinn er í sex sinnum meiri hættu á að fá hjartaáfall fyrstu vikuna eftir fráfallið
Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is
23:26 › 29. janúar 2012
Þeir sem missa maka sinn eða náinn ástvin eru í meiri hættu á að fá hjartaáfall fyrstu dagana eftir fráfallið.

Þeir sem missa maka sinn eða náinn ástvin eru í meiri hættu á að fá hjartaáfall fyrstu dagana eftir fráfallið. Mynd: Photos.com

Þunglyndi, kvíði og reiði hefur oft verið tengd við það sorgarferli sem fólk gengur í gegnum við fráfall nákominna ættingja eða ástvina. Þrátt fyrir að flestir komist í gegnum sorgarferlið áfallalaust eru þeir sem syrgja þó sjálfir í hættu á að falla frá. Vísindamenn við Harvard-háskóla halda því fram að þú getir í rauninni dáið úr hjartasorg en í þeim tilfellum sem einstaklingur deyr vikum eða mánuðum eftir að hafa misst maka sinn er það í 20 til 53 prósentum tilfella vegna hjarta- og æðasjúkdóma.

Tilfinningalegur hvirfilbylur
Samkvæmt vísindamönnum við læknadeild Harvard-háskóla eykst hættan á að fá hjartasjúkdóma hjá þeim sem hafa nýlega misst ástvin eða nákominn ættingja og er hættan 21 sinni meiri fyrstu dagana eftir að makinn deyr og sex sinnum meiri fyrstu vikuna eftir missinn. Elizabeth Mostofsky, stjórnandi rannsóknarinnar, segir að sá tilfinningalegi hvirfilbylur sem fólk gengur í gegnum eftir missinn, streita og svefnleysi, auk þess sem margir gleyma að taka lyf sem eru þeim nauðsynleg, séu allt ástæður fyrir þessari auknu hættu.

Hún nefndir einnig sem dæmi að í niðurstöðum skoskrar rannsóknar á 4.395 hjónum komi fram að þeir sem eru í sorgarferli eftir makamissi eru í mun meiri hættu á að deyja en þeir sem eru ekki í sorgarferli. Þetta kemur fram í grein sem birtist í ritinu Circulation þar sem greint er frá rannsókn vísindamannanna við Harvard.

Nánar er fjallað um málið í DV í dag. Áskrifendur að DV.is geta lesið alla fréttina ef þeir ýta á meira

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?