Fjölmargar breskar ferðaskrifstofur munu eiga í verulegum vandræðum næstu misserin nema þær gjörbreyti viðskiptamódeli sínu. Mögnuðum uppgangi lággjaldaflugfélaga er aðallega um að kenna.
Meirihluti ferðafólks nýtir sér nú netið en ekki hefðbundnar ferðaskrifstofur við að skipuleggja ferðalög sín
Þetta segir í nýrri skýrslu ráðgjafafyrirtækisins KMPG í Bretlandi sem telur ljóst að ferðaskrifstofur eins og þær hafa verið reknar frá örófi alda séu barn síns tíma. Breyta þurfi ýmsu ætli þær að halda rekstri sínum yfir núllinu. Einar 24 skráðar breskar ferðaskrifstofur hafa hætt starfsemi það sem af er þessu ári og sýnir kannski glögglegar en nokkuð annað þörfina að breyta hugsunarhættinum.
Bent er á að sífellt færri viðskiptavinir panti og greiði ferðir sínar hjá ferðaskrifstofunum með góðum fyrirvara eins og raunin hefur verið síðustu áratugi. Fleiri kjósi að nýta sér kosti netsins og framleiði sínar eigin ferðir og sníði slíkt algjörlega að eigin höfði. Önnur nýleg skýrsla KPMG sýnir að í 74 prósent Breta bóka nú þegar ferðir sínar alfarið á eigin máta gegnum netið og sleppa milliðnum.
Yfirfæra má þessa þróun í Bretlandi að nokkru leyti hingað til lands þó vissulega ríki ekki hér nándar nærri eins mikil samkeppni og í Bretlandi.
En smátt og smátt er það að gerast; stutt er þangað til þriðji íslenski aðilinn, Wow Air, býður upp á flug til og frá landinu og sömuleiðis hlýtur að vera tímaspursmál þangað til stórir erlendir aðilar bjóða ferðir til og frá landinu allan ársins hring. Hafa flugmálayfirvöld þegar tekið ákvörðun um að ýta undir það og greiða flugfélög sem það bjóða verulegan afslátt af lendingargjöldum hérlendis.
Lesa á Fararheill.is



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Wow Air undirbýður Iceland Express
40 þúsund krónur fyrir fjölskylduna í Disneyland
Samkeppni á suðustigi í fluginu
Ef aðeins væru héðan ferðir til Grikklands
Sértilboð til Stuttgart og Zurich
