Ferðaskrifstofan Sumarferðir auglýsir í blöðum dagsins svokallaðan Sólarhring sem vísa á til þess að í einn sólarhring geta áhugasamir keypt ferðir þeirra á betra verði en annars. Nema vafi leikur á hvaða sólarhring nákvæmlega er verið að vísa til.
Mallorca er einn af nýjum áfangastöðum Sumarferða þetta sumarið en vafi leikur á hvenær besta verðið er í boði
Eins og sést á meðfylgjandi mynd stendur í meginmáli auglýsingarinnar að Sólarhringur Sumarferða hefjist á mánudaginn klukkan tólf á hádegi. Sem er gott og blessað en í hliðardálki sömu auglýsingar kemur fram að Sólarhringurinn hefjist stundvíslega á hádegi í dag laugardaginn 28. janúar.
Ekki er að sjá á vef Sumarferða hvor dagsetningin er í gildi og reyndar ekkert þar að finna um væntanlegt tilboð þegar þetta er skrifað.
Vafalítið er hægt að krefjast þess að njóta bestu mögulegu kjara með vísun í að vafi lék á dagsetningu tilboðsins sé eftir því leitað en þó kemur ekki fram í auglýsingunni hversu mikill afsláttur er veittur af uppgefnu verði á sólarlandaferðum ferðaskrifstofunnar.
Einungis vísað til þess að ódýrustu sætin bókast fyrst og því gildir fyrstir koma, fyrstir fá.
Nema tilgangurinn sé að halda hugsanlegum viðskiptavinum í spennu út af þessu.
Lesa á Fararheill.is



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 



Wow Air undirbýður Iceland Express
40 þúsund krónur fyrir fjölskylduna í Disneyland
Samkeppni á suðustigi í fluginu
Ef aðeins væru héðan ferðir til Grikklands
Sértilboð til Stuttgart og Zurich
