ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Hvað er Ultrabook?

Framleiðendur segja að Ultrabook sé næsta skref
Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
22:29 › 28. janúar 2012
Ultrabook-tölvur eru komnar í framleiðslu hjá stærstu tölvuframleiðendum heims.

Ultrabook-tölvur eru komnar í framleiðslu hjá stærstu tölvuframleiðendum heims.

Flestir tölvuframleiðendur eru farnir að framleiða svokallaðar Ultrabook-fartölvur. Tölvurnar eru litlar, léttar en mjög öflugar. Tölvurnar eru einhverskonar svar tölvuframleiðenda við vinsældum spjaldtölva sem eru farnar að koma sér vel fyrir á markaði á kostnað hefðbundinna fartölva. Á CES 2012 raftækja- og tækniráðstefnunni voru margar Ultrabook-fartölvur kynntar til sögunnar.

Ultrabook-tölvur eru í raun ekki bara svar tölvuframleiðenda við spjaldtölvum heldur hreinlega svar þeirra við MacBook Air-fartölvunni frá Apple. Sú tölva hefur allt til brunns að bera sem Ultrabook-fartölvur þurfa að hafa. Tölvan er lítil, þunn, létt, með góðum skjá og öflug. Tölvan er þó með háan verðmiða og hefur verið helsta tækifæri samkeppnisaðila Apple að koma með ódýrari en sambærilegar tölvur á markað. Það hefur ekki tekist.

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?