ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Konur kvarta meira yfir sársauka

Karlar með hærri sársaukaþröskuld en konur samkvæmt rannsókn
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:30 › 26. janúar 2012
Sársauki
Karlar virðast síður finna til sársauka en konur samkvæmt niðurstöðunum.

Sársauki Karlar virðast síður finna til sársauka en konur samkvæmt niðurstöðunum. Mynd Photos.com

Konur eru með töluvert lægri sársaukaþröskuld en karlar. Hinu öfuga hefur oft verið haldið fram en nú hafa vísindamenn við Stanford-sjúkrahúsið í Kaliforníu birt niðurstöður umfangsmikillar rannsóknar á þessu sviði.

Skoðaðir voru ellefu þúsund karlar og konur sem allir voru sjúklingar á sjúkrahúsinu. Meðan þeir dvöldu á sjúkrahúsinu voru þeir beðnir um að fylla út eyðublað þar sem þeir áttu að lýsa hversu miklum sársauka þeir fundu fyrir samfara þeim kvillum sem hrjáðu þá, má þar nefna krabbamein, sýkingar og bakverki. Skalinn sem notast var við var á bilinu 0 til 11. Þannig var 0 enginn sársauki en 11 versti mögulegi sársauki.

Meðaltal þess sem merkt var við var nálægt fimm en marktækt fleiri konur merktu þó við hærri tölu á skalanum en karlar.
Dr. Atul Butte, sérfræðingur við Stanford-læknaháskólann, hafði yfirumsjón með rannsókninni og segir hann að taka verði tillit til þess að það sé einstaklingsbundið hvenær sársauki verður óbærilegur og hvenær ekki. Sumir séu einfaldlega harðari af sér en aðrir og það komi því ekkert við hvort um sé að ræða konu eða karl. Þó segir hann að mikill munur á milli kynjanna komi á óvart og þar sem úrtak rannsóknarinnar var jafn stórt og raun ber vitni virðist það vera þannig að karlar finni síður fyrir sársauka en konur. Butte segir að hann ætli að halda áfram rannsóknum á þessu sviði til að fá skýrari niðurstöðu í málið.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?