Um hávetur finna margir fyrir þurrki á vörum, olnbogum og hnjám. Slíkur þurrkur kemur oft til vegna mikilla umhleypinga í veðri. Húðin reynir að bregðast við umskiptum úr hita í kulda með þeim afleiðingum að hún á það til að dragast saman. Þá er gott að hafa handhæga lausn í töskunni.
Rosebud-varasalvinn er lofaður af mörgum og fæst nú á Íslandi. Hann hefur verið framleiddur í meira en 100 ár þótt uppskriftin hafi verið uppfærð reglulega. Salvinn inniheldur ekki vax og má nota á minni háttar þurrk á húð sem og brunasár. Nýr Rosebud-salvi fæst í umbúðum sem minna á gamla tíma og er með mintu- og rósatónum.
Veturinn er vandræðatími fyrir þá sem eru með ójafna húð og leitin að rétta rakakreminu reynist mörgum erfið. Rakakremið La Mer er mest lofað af konum víða um heim en er venjulegum konum helst til of dýrt, það fæst ekki hér á landi en túba af kreminu er seld á rúm 500 pund erlendis sem gera um 100 þúsund íslenskar krónur.
Fyrirsætur sem þurfa oft að standa sína vakt utandyra í alls kyns veðrum lofa hins vegar margar tvö önnur krem sem þær segja standa undir væntingum þegar veður er bæði kalt og umhleypingasamt.
Rakakremið Dry Skin Relief frá Eucerin er lofað af Adrianne Lima og fleiri ofurfyrirsætum og komst reyndar í fréttir fyrir nokkrum árum þegar hún var andlit Estée Lauder. Þá hentar kremið Skin Fortifying Hydrator frá Clarins einkar vel í umhleypingunum og heldur fjármálunum á réttu róli á sama tíma.
Hárið á það til að verða þurrt yfir veturinn og mörgum finnst hárið verða líflausara en á öðrum tímum ársins. Til að gæða hárið lífi yfir veturinn er ráð að verja það gegn veðri og vindum.
Notaðu húfu eða trefil til að verja hárið gegn kuldanum, notaðu hárnæringu oftar en vanalega og takmarkaðu blástur og notkun heitra járna. Ekki þvo hárið oft og alls ekki upp úr heitu vatni þó það sé freistandi í kuldanum. Notaðu fremur volgt vatn.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Íslensk fyrirsæta í hörkukeppni
Lýstu hárið með kamillute
Sumartrend: Skart við skyrtu
Flott föt á alla fjölskylduna
Stjörnurnar í H&M klæðnaði
