Maður er nefndur Gordon Ramsey og þykir færari en flestir í eldhúsinu. Það er ástæða þess að karlinn hefur opnað fjölda veitingastaða hingað og þangað til að græða á frægðinni enda hún fallvölt eins og annað í þessu lífi.
Einn tíu veitingastaða hins eitraða Gordon Ramsey er Maze í London. Hægt er að bíta þar og borða á tilboði þessa stundina
Það er þó alla jafna ekki gefið að snæða á einum af veitingastöðum hans. Kostar ódýr réttur árslaun verkamanns í Bangladess og ef fram heldur sem horfir árslaun verkamanns á Íslandi.
Tilboðsmiðillinn Lastminute.com býður fólki nú að setjast að snemmbúnum snæðingi á veitingastaðnum Maze sem Ramsey á og rekur og það fyrir öllu lægra verð en gengur og gerist.
Maze finnst á Brook stræti í London, lest að Bond stræti, og sé fólk á ferð í þeirri borg alveg á næstunni gefst hér tækifæri að kanna snilld Ramsey´s án þess að taka lífeyrissjóðslán.
Tilboð Lastminute.com hér en hafa verður hraðar hendur því efalaust eru margir um hituna.
Heimasíða Maze hér. Allt um London.
View Maze veitingastaður Gordon Ramsey í London in a larger map
Lesa á Fararheill.is




Þau drög að uppsögn Gunnars Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, sem birst hafa almenningi, bera þess merki að annarleg sjónarmið kunni að liggja að baki. Svo mikið lá á að koma Gunnari ... 


Köben og Berlín á tilboðsverði
Samkynhneigðir fjölmenna til Cape Town
Wow Air bítur frá sér
Útlitið skiptir (næstum) engu máli
Viltu velja þér sætisfélaga?