ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Kaupa iPad 2 fyrir leikskólabörn

Vonast til þess að stórauka læsi.
Símon Örn Reynisson simon@dv.is
10:16 › 19. apríl 2011
Börnin munu nota iPad 2 við námið.

Börnin munu nota iPad 2 við námið. Reuters

Skóli í Maine hefur afráðið að verja ígildi tæplega tuttugu og þriggja milljóna króna í að kaupa iPad fyrir nemendur sína á leikskólastigi. Vonast er til þess að spjaldtölvurnar auðveldi nemendum að læra að lesa og hjálpi þeim á margvíslegan hátt í náminu.

Þá er vonast til þess að læsi meðal nemenda á leikskólastigi í skólanum, sem er í Auburn-borg í Maine fylki Bandaríkjanna, fari frá um 62 prósentum upp í 90 prósent vegna kaupanna. Ýmsir gagnrýnt áformin þar ytra vegna mikils kostnaðar í miðjum niðurskurði og sumir hafa einnig áhyggjur á að mikil notkun tölva á svo ungum aldri geti haft slæm áhrif á þroska barnanna.

En aðrir hafa lýst yfir stuðningi vegna áformanna og telja þeir að notkun spjaldtölvunnar geti hjálpað nemendum gríðarlega, þá sérstaklega þeim sem eiga í erfiðleikum með námið. „iPad 2 tölvuna er hægt að sníða eftir þörfum hvers barns, annmörkum þess og hæfileikum, og það getur gert reynslu barnsins af lærdóminum mun betri,“ hefur Live Science vefurinn eftir Söndru Calvert, prófessor við Georgetown-háskóla.

„Ef þú leyfir börnunum að komast ungum í tæri við nýja og áhugaverða tækni, og þau haldast við efnið, þá ertu á réttri leið,“ bætti Calvert við. Börnin munu fá að nota tölvuna á meðan að þau eru í skólanum í umsjá kennara.

Þá á iPadinn helst að hafa það yfir hefðbundndar tölvur að börnin einbeita sér fremur að efninu, þar sem að þau þurfa ekki að nýtast við tölvumýs eða lyklaborð. Athygli barnanna beinist þá síður að tæknibúnaðinum sjálfum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?