Skemmd epli

Þingsetningin er fyrirboði þess að meiri sáttfýsi svífi yfir vötnum en áður. Eftir rifrildi og illdeilur undanfarinna ára virðist sem sjatnað hafi í mestu ólgunni. Sumir þingmenn voru meira að segja að hluta sanngjarnir í garð andstæðinga sinna. Þetta er líklega til vitnis um að þingmenn eru að vakna til vitundar um að þjóðin hefur sáralítið álit á þinginu og þeim sem þar sitja. Allt frá hruni hafa þingmenn allra flokka lamað þingið með því að magna upp úlfúð og passa upp á að næra eld ósamlyndis.

Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Bjartar framtíðar, vakti máls á þessu ástandi við þingsetninguna. Þingmaðurinn benti á að girðingarnar framan við þinghúsið segðu það sem segja þarf um ástandið. Undanfarin ár hafa þingmenn orðið að láta lögregluna slá skjaldborg um vinnustaðinn og víggirða húsið til þess að verða ekki fyrir skaða af völdum kjósenda sinna. Óttinn er ekki ástæðulaus því þúsundir manna hafa gert að þeim hróp. Og þeir hafa verið grýttir af fólki sem allajafna er dagfarsprútt en er ofboðið vegna kæruleysis þingmanna sem átti sinn þátt í því að steypa þjóðinni í hörmungar hrunsins.

Í vor verða kosningar þar sem almenningur fær þess kost að skipta út fólki á Alþingi. Það er líklega óttinn við kosningar sem veldur því að þingmenn eru með prúðasta móti við upphaf kosningavetrar. Atvinna þeirra er undir og vinnuveitandanum er nóg boðið. Það er öllum ljóst að ástandið á vinnustaðnum Alþingi er þannig að verklag er afleitt og skilvirkni sáralítil. Menn beita öllum brögðum til að bregða fæti fyrir andstæðingana. Tilgangurinn hefur helgað meðalið.

Það er nauðsynlegt að stokka rækilega upp í þingliðinu. Allir flokkar og samtök sem bjóða fram til Alþingis verða að taka til í sínum röðum og henda út skemmdum eplum. Spillingarkólfar og styrkjakóngar eiga að víkja fyrir nýju og óspilltu fólki. Uppstokkunin, auk þess að þingmenn gerist málefnalegir í vetur, getur orðið til þess að þjóðin taki þingið í sátt. Það er óboðlegt að æðsta stofnun þjóðarinnar hafi á sér álit sem er eitt það lægsta á meðal þjóðarinnar. Nú eiga stjórnmálamenn allra flokka leik.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.