Einlæg Agnes

Agnes M. Sigurðardóttir, nýr biskup Íslands, ber með sér von þjóðkirkjunnar um að snúið verði af þeirri ógæfubraut sem mörkuð var af forverum hennar í embætti. Síðustu árin hefur kirkjan verið á stöðugu undanhaldi vegna þess að fólk hefur sagt upp nauðungaráskriftinni og flúið samtökin. Þúsundum Íslendinga hefur ofboðið sú ömurlega afgreiðsla sem átti sér stað þegar upp komu kynferðisbrot kirkjunnar þjóna. Verst var samt klúðrið þegar hópur kvenna sakaði Ólaf Skúlason, biskup Íslands, um slíka hegðun. Á meðal þeirra sem sökuðu biskup um óeðli var dóttir hans.

Fjölmargir prestar fylktu liði að baki foringja sínum og forsmáðu konurnar. Karl Sigurbjörnsson biskup reyndi að þagga málið niður með því að stinga undan bréfi. Og nokkrir prestar, sem enn sitja í embættum sínum, brugðust með herfilegum hætti trausti safnaða sinna. Afleiðing alls þess var flótti sóknarbarna í aðra söfnuði og trúnaðarbrestur þjóðar og þjóðkirkju. Seint og síðar meir hrökklaðist Karl biskup úr embætti.

Agnes biskup kemur úr Bolungarvík, lítilli sókn úti á landi. Hún er fyrsta konan til að gegna þessu æðsta embætti þjóðarinnar. Í viðtali við helgarblað DV sagði hún með yfirlætislausum og einkar hreinskilnum hætti frá lífi sínu og starfi. Sjálf hefur hún gengið í gegnum hjónaskilnað sem breytir þó ekki afstöðu hennar til hjónabandsins sem hún styður. Hún styður það heilshugar að samkynhneigt fólk fái að ganga í hjónaband. Hún er afdráttarlaus hvað það varðar að mistök fortíðar megi ekki eiga sér stað aftur innan þjóðkirkjunnar. „Svona mál verða ekki þögguð niður lengur,“ sagði Agnes við DV.

Fyrst og fremst kemur fram í viðtalinu að hún er manneskja en ekki einstaklingur sem telur sig hátt yfir aðra hafinn. „Ég vil ekki vaða yfir fólk,“ segir Agnes.

Það er ástæða til að ætla að þjóðkirkjunni farnist betur með Agnesi sem leiðtoga en forvera hennar. Hugsanlega er mestu niðurlægingu þjóðkirkjunnar á síðari tímum lokið. Nýr biskup áttar sig á því að kirkjan má ekki ofbjóða fólki sínu. Hér ríkir trúfrelsi og enginn þarf að vera nauðugur innan vébanda þjóðkirkjunnar. Agnesar bíður nú það verkefni að bæta skaðann sem syndir forvera hennar hafa valdið.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.