Innan Háskóla Íslands ríkir ástand sem hlýtur að teljast slæmt þegar litið er til æðstu menntastofnunar Íslands. Hneykslismál hafa komið upp án þess að Kristín Ingólfsdóttir rektor hafi til þess dug eða siðferði að leysa. Nýlegt dæmi um guðfræðinginn Kristinn Ólason er lýsandi dæmi um það hvernig rektor Háskóla Íslands bregst við erfiðum málum. Kristinn var stundakennari í guðfræðideild Háskólans og hafði logið upp á sig doktorsgráðu. Eftir að málið komst í hámæli var hann rekinn. En jafnframt reyndi skólinn að leyna því hver ætti í hlut. Viðurkennt var að þarna ætti í hlut stundakennari við guðfræðideild en ekkert umfram það. Þannig voru allir stundakennarar Háskóla Íslands undir grun um að hafa logið upp á sig prófgráðu.
Í Háskóla Íslands hafa áður komið upp hneykslismál sem leyst hafa verið með þögn eða yfirklóri. Ritþjófnaður Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar prófessors á hugverkum Halldórs Kiljans Laxness er mál sem vakti þjóðarathygli, enda ósvífið athæfi manns sem á að vera öðrum fyrirmynd. Lærimeistari ungs fólks við Háskóla Íslands var gripinn glóðvolgur, staðinn að verki. En rektorinn aðhafðist ekkert. Prófessorinn fingralangi fékk ekki einu sinni áminningu og situr enn í starfi sínu í skjóli spillts rektors.
Við Háskólann kom fyrir nokkrum árum upp mál þar sem lögfræðinemi tók traustataki hluta úr ritgerð annars aðila og skilaði inn sem sinni eigin. Málið komst upp en Háskólinn brást við með því að gefa honum annað tækifæri til að skrifa sína BA-ritgerð. Það mál hefur skapað fordæmi til þess að aðrir nemendur eiga sama rétt til að svindla og lögfræðineminn.
Skilaboð Háskóla Íslands eru þau að það megi taka hugverk annarra ófrjálsri hendi. Hvort sem um er að ræða prófessora eða nemendur þá verður slíkt fyrirgefið. Þetta er á ábyrgð Kristínar Ingólfsdóttur sem hefur gert skóla sinn að hýsli spillingar. Í Háskóla Íslands má svindla.
Framganga rektors Háskóla Íslands er með algjörum endemum. Mál Hannesar Hólmsteins hefði átt að vera tilefni til afsagnar rektors sem þó iðrast í engu. Það að inn í raðir starfsmanna Háskólans skyldi komast maður með falska doktorsgráðu ætti að verða tilefni til að rektorinn axli sína ábyrgð og fari. En svo er ekki. Reynt er umfram allt að leyna málinu í stað þess að gera það upp fyrir opnum tjöldum. Það getur ekki verið rétt að leyna svo alvarlegu máli. Og það er beinlínis rangt að varpa grun á hóp kennara. Yfirvöld Háskólans eru í engu starfi sínu vaxin. Það verður að grípa í taumana.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013