Nú er komið á daginn að íslenskir skattgreiðendur þurfa að greiða sem nemur fjórum milljörðum króna vegna björgunar tryggingafélagsins Sjóvár. Saga þess tryggingafélags er einkar lýsandi fyrir það sem gerðist á útrásarárunum þegar óheiðarlegt fólk fór hamförum við að græða og grilla. Endirinn var sá að gengið hafði verið á bótasjóð félagsins með þeim skelfilegu afleiðingum að félagið átti ekki fyrir skuldbindingum.
Einn þeirra sem voru í hlutverkum þegar grætt var á Sjóvá var Bjarni Benediktsson, núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins. Þegar DV hóf umfjöllun um milljarðabrall Milestone, Bjarna og ættmenna hans í kringum Glitni, Sjóvá, Vafning og lúxusturn í Makaá taldi Bjarni að þar væri gerð að sér aðför. Aðkoma Bjarna var sú að veðsetja turninn, sem var í eigu Sjóvár, til að bjarga eignarhlut Engeyjarættarinnar í Glitni. Allt brall ættarinnar með Sjóvá hefur nú orðið til þess að milljarðar skella á almenningi. Og einn óreiðumannanna er núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins.
Þegar blaðamaður DV benti Bjarna á það á sínum tíma að björgun Sjóvár myndi á endanum lenda á skattborgurum brást hann ókvæða við. Á honum var að skilja að hann hefði eingöngu verið sendill föður síns og frænda og bæri enga ábyrgð. Bjarni varði þó gjörðir eigendaklíkunnar og fullyrti í sama samtali að ríkið myndi ekki tapa á falli tryggingafélagsins. „Hvenær lagði ríkið fram peninga sem það fær ekki til baka? Væntanlega mun ríkið ekki bera neinn skaða af þessu. Þegar þú segir að ríkið tapi þeim peningum þá verður það að vera komið í ljós að ríkið fái þá peningana ekki til baka,“ sagði Bjarni á þessum tíma við DV.
Hann lét ekki þar við sitja heldur reyndi með þjösnaskap að fá þáverandi aðaleiganda blaðsins, Hrein Loftsson, til að stöðva umfjöllun. Og hann notaði hvert tækifæri til að sverta ritstjórnina. Meðal annars kallaði hann blaðið málgagn Vinstri-grænna opinberlega. Heiftarlegar árásir formannsins hljóta að skoðast í ljósi þess sem nú er komið á daginn. 4.000 milljónir skullu á íslenskum heimilum. Það samsvarar því að hver einasti Íslendingur þurfi að greiða 16 þúsund krónur til að borga skaðann af gróðabralli Engeyinga og meðreiðarsveina þeirra með bótasjóðinn og aðrar eignir Sjóvár. „Þú ert bara aumur blaðamaður sem ert að velta þér upp úr skítnum til að reyna að selja blaðið,“ sagði Bjarni í desember 2009 við Inga Vilhjálmsson, blaðamann DV, sem taldi að tapið af brallinu með Sjóvá og lúxusturninn yrði þrír milljarðar. Þetta er nú staðfest.
Nú liggur fyrir hvert tap ríkisins er og að mat blaðamanns DV var rétt. Í framhaldinu hlýtur að vera horft til ábyrgðar Bjarna í málinu. Hið eðlilega væri að hann segði af sér þingmennsku. Því verður seint trúað að kjósendur á Íslandi láti tilleiðast að láta atkvæði sitt á mann með slíka fortíð. Allir sjálfstæðismenn hljóta nú að vega það og meta hvort það sé farsælt í komandi kosningum að vera með Bjarna Benediktsson, sótsvartan af útrásarsyndum, í stafni. Verður ekki flokkurinn dæmdur til þess að vera í stjórnarandstöðu til næstu framtíðar? Þegar staðfest er áfall íslenskra skattborgara þarf aðeins að kalla eftir ábyrgð. Farðu Bjarni, farðu. Það er nóg komið.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013