Hættulegir Danir

Danska nýlenduþjóðin er mörgum skaðlegri en ætla mætti af umfjöllun á Íslandi. Hérlendis lítum við á gömlu herraþjóðina sem einskonar samansafn grallara með söngvaskáldið Kim Larsen sem samnefnara. Við látum sem þessi nágrannaþjóð okkar sé umfram annað lífsglöð og bjórlepjandi þjóð sem lifi á skinku og hafi litlar áhyggjur af morgundeginum. En þetta er aðeins yfirborðið. Þegar betur er að gáð kemur í ljós að Danir eru yfirgangsseggir í samskiptum við smærri þjóðir. Grænlendingar hafa bitra reynslu af Dönum sem hafa ráðið flestu á landi þeirra. Reynt var að gera dönsku sem aðalmál og grænlenskunni ýtt til hliðar. Með grallarlegu yfirbragði en þeim klára ásetningi að ýta út grænlenskri menningu fyrir þá dönsku hafa Danir í áranna rás grafið sig eins og veggjatítlur inn í grænlenskt samfélag.

Veiðmannasamfélagið, sem sjálfu sér nægt, lifði í sátt við náttúruna hefur látið undan síga fyrir dönskum háttum. Styrkjakerfi hefur verið komið á í landinu í þeim tilgangi að gera Grænlendinga háða herrum sínum. Það hefur haft þær afleiðingar að félagsleg vandamál tröllríða nágrannaþjóð okkar. Styrkakerfið hefur gert veiðimennskuna sem atvinnugrein óþarfa og fólk missir áttir. Óregla er mikil og sjálfsvígstíðni ungs fólks há. Grænlendingar sjá ekki framtíðina í falska, danska góðærinu.

Danir á Grænlandi eru fjölmargir. Þeir eru fæstir á styrkjum. Þvert á móti sitja þeir í mörgum tilvikum að bestu störfunum og ráða í raun því sem þeir vilja í gegnum embættismannakerfið. Og þeir vita sem er að Grænland býr yfir gríðarlegum auðlindum sem á næstu árum munu væntanlega gef mikinn arð. Þess vegna hanga þeir á völdunum og halda niðri grænlensku þjóðinni með því að gera hana háða sér í flestu. Þeir eru langt komnir með að eyðileggja grænlenska menningu.

Nú vilja Danir eignast Norðurpólinn. Í skjóli yfirráða sinna á Grænlandi hafa þeir sent vísindamenn til að mæla landgrunnið fyrir norðan Grænland. Þessi rannsókn á síðan að verða niðurstaða þess að nýlenduveldið fái yfirráð yfir Norðurpólnum. Næsta skref verður að framvísa kröfunni á landgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna. Þarna sýna Danir skýran vilja til enn frekari útþenslu á norðurslóðum. Ásælni þeirra í Norðurpólinn er ekki til þess að efla hag Grænlendinga. Þetta er einfaldlega einn eitt skrefið í því að arðræna fjarlægt land.

Á meðal Grænlendinga er talsverð sjálfstæðisbarátta og þjóðin hefur náð árangri í því að fá að stjórna sínum málum að einhverju marki. Danir hafa þurft að hopa nauðugir. Íslendingar eiga að taka skýlausa afstöðu gegn nýlenduveldinu og styðja Grænlendinga til sjálfstæðis með ráðum og dáð. Íslenska þjóðin byggir á langri reynslu af því að vera undir danskri kúgun. Í skugga þeirra minninga eigum við að styðja grænlenska nágranna í því skyni að bjarga þeim undan yfirgangi þjóðar sem skeytir í engu um menningu þeirra. Samstarf Íslendinga og Grænlendinga getur orðið á jafnréttisgrundvelli þar sem virðing fyrir sjálfstæði yrði í öndvegi. Danir eiga ekkert erindi á norðurslóðir með peningana sína. Þeir eru nýlendukúgarar.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.