Sorp hinna ríku

Leyndarhyggja Íslendinga er með ólíkindum. Hún kemur ágætlega fram í því þegar skattskrárnar eru opnaðar síðsumars í stuttan tíma. Í stað þess að birta álagningu einstaklinganna á netinu eru þær settar í möppur sem liggja tímabundið frammi á skattstofum. Þar getur fólk pukrast við að leita að upplýsingum sem ættu að vera sem sýnilegastar.

Það ætti í rauninni alls ekki að vera neitt leyndarmál hvað fólk borgar til samfélagsins í formi skatta og gjalda. Þvert á móti ætti allt slíkt að vera opinbert. Skattakóngar og -drottningar eiga að vera stolt af framlagi sínu til samneyslunnar. Með opinberun skapast eðilegt aðhald. Sýnilegt verður þegar hátekjufólk greiðir vinnukonuútsvar. Flestir þekkja dæmi um fólk sem lifir í lúxus en lætur aðra borga fyrir að hirða ruslið frá þeim. Í sinni verstu mynd er þetta þá þannig að fátækt fólk greiðir fyrir sorp hinna ríku.

Öllum Íslendingum kemur það við hvernig álagningu skatta er skipt og hverjir bera þyngstu og léttustu byrðarnar. Hitt er svo annað mál að það er eðlilegt og skiljanlegt baráttumál að vilja lækka skatta og útsvar og skera niður umsvif ríkisins. Þeir sem vilja skattleggja með neyslusköttum í stað núverandi fyrirkomulags hafa mikið til síns máls. Núverandi skattakerfi er hriplegt og er ekki mælikvarði á lífsafkomu fólks. En það breytir ekki þeirri staðreynd að kerfið er til staðar og opinberar upplýsingar leiða af sér besta virka aðhaldið.

Fremur en að fela skatta einstaklinganna inn í myrkviðum hins opinbera ætti að vera baráttumál að gera upplýsingarnar opinberar allt árið. Það getur aldrei verið einkamál nokkurs manns hvernig sameiginlegum byrðum er skipt niður. Ef Íslendingar vilja færa sig lengra í áttina að opnu og heilbrigðu samfélagi þarf að svipta hulunni af leyndarmálum kerfisins. Þetta á við um allan afskriftaviðbjóðinn sem á sér stað í bankakerfinu þar sem fólki og fyrirtækjum er gróflega mismunað. Nýleg dæmi um Íslandsbanka og vildarvini þess banka eru mörgum ofarlega í minni. Við eigum að hafa sem mest uppi á borðum og tryggja þannig að spillingin verði í lágmarki. Og það er aðeins fólkið sjálft sem getur staðið á bremsunni þar. Stefnum að því að birta skatta og útsvar fólks á netinu þar sem upplýsingarnar eru alltaf sýnilegar. Í framhaldinu væri þarft að löggjafinn skikkaði rótspillta bankamenn til að opinbera afskriftir yfir ákveðinni lágmarkstölu. Þá verður Ísland betra.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.