Alþjóðlegu kortafyrirtækin VISA og Mastercard eru á hrikalegri braut þegar þau leyfa sér í krafti stærðar og einokunar að loka á viðskipti eftir geðþótta. Aðför alþjóðlegu kortarisanna að uppljóstrunarsamtökunum WikiLeaks er af þeirri stærðargráðu siðleysis og ofbeldis að fólk hlýtur að staldra við. Með einni ákvörðun gerðu kortarisarnir út um tekjumöguleika WikiLeaks sem fá framlög sín í gegnum netið frá þeim sem vilja styðja við bak þeirra sem vinna að uppljóstrunum. Undirréttur á Íslandi dæmdi WikiLeaks í hag. „Ég vona að þetta verði tímamótadómur og að Valitor hunskist til að una dómnum, enda engin efnisrök til að áfrýja,“ sagði Kristinn Hrafnsson, talsmaður WikiLeaks, á Beinni línu DV.
Það er ástæða til að taka undir þetta með Kristni sem því miður varð ekki að ósk sinni þar sem kortarisarnir hafa áfrýjað til Hæstaréttar.
Valdi fylgir ábyrgð. Ofbeldisseggir kortafyrirtækjanna sem stóðu fyrir banninu gera sér augljóslega ekki grein fyrir því að þeir eiga að vera í þjónustuhlutverki í þágu almennings. Þeir eiga ekki að láta pólitískar skoðanir sínar eða væntingar hafa áhrif á dagleg störf sín. Kortafyrirtæki á ekki, fremur en bensínsjoppa, að vinna á pólitískum nótum þótt almennt siðgæði eigi að vera til staðar.
Saga VISA og hinna kortafyrirtækjanna er vörðuð milligöngu um alls konar vafasöm viðskipti. Með milligöngu þeirra hefur verið hægt að kaupa klám og menn hafa getað komið sér upp vopnum. Þá hafa kortafyrirtækin þjónustað haturssamtök á borð við Ku Klux Klan. Og þeir rísa gegn WikiLeaks sem hefur aðeins gegnt þeirri skyldu sinni að halda almenningi sem mest og best upplýstum.
Ofbeldi VISA er grímulaus þöggun til að stöðva upplýsingar til almennings. Að vísu hefur Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor á Ísland, eiganda VISA, ekki manndóm til að viðurkenna að þarna sé um að ræða þöggun. Hann þóttist ekkert vita um ástæðurnar. „En við höfum enga sérstaka skoðun á WikiLeaks,“ bætti hann við í samtali við RÚV, spurður um álit sitt á WikiLeaks. Það er vonandi að VISA tapi þessum málum víða um heim. Það er nauðsynlegt að refsa mönnum og fyrirtækjum sem grípa til þöggunar með ofbeldi. Það má ekki vera á valdi kortarisanna að ákveða hvaða samtök eða fjölmiðlar lifa eða deyja. Og það verður að koma til kasta almennings og heiðarlegra stjórnvalda til að tryggja að siðleysið haldi ekki áfram. Fólk verður að standa við bakið á Kristni og félögum hans hjá WikiLeaks.

Hemmi Gunn fallinn frá