Þú drepst úr leti

Íslenska þjóðin hefur smám saman verið að þyngjast vegna hreyfingarleysis og sykurfíknar. Margir eru í þeirri stöðu að borða of mikið, hreyfa sig of lítið og liggja í ólifnaði. DV segir í dag frá nýrri rannsókn 33 vísindamanna sem birtist í læknatímaritinu The Lancet þar sem færð eru fyrir því rök að fleiri deyi vegna kyrrsetu en reykinga. Niðurstaðan er sú að árlega deyja um fimm milljónir manna af þessum völdum. Með þessu er ekki sagt að fólk eigi að reykja. Þar liggur fyrir að dauðinn er í sjónmáli. Munurinn á vandanum vegna reykinga og kyrrsetu er sá að við höfum náð árangri með það fyrrnefnda. Kyrrsetan er vaxandi vandi.

Íslendingar eru örugglega í verri málum en margar þjóðir þegar litið er til hreyfingar. Holdafar þjóðarinnar er speglun af því sem gerist hjá Bandaríkjamönnum. Við lifum gjarnan á óhollum skyndibita, rétt eins og fyrirmyndir okkar vestan hafs, og söfnum spiki.

Í grein vísindamannanna er hluti skýringarinnar rakinn til þess að svo margt er orðið stafrænt og bent á að það geri fólk líkamlega óvirkt. Þannig er talið að um þriðjungur fullorðinna hreyfi sig sáralítið. Það alvarlega er þó að unglingar eru í enn verri stöðu. Hjá þeim ríkir sá kúltúr að fjórir af hverjum fimm glími við hreyfingarleysi, sitji fyrir framan sjónvarp eða tölvu og skemmi heilsu sína.

Það er full ástæða fyrir íslensk stjórnvöld að gefa þessum málum gaum. Hver offitusjúklingur kostar ríkið morð fjár vegna heilbrigðisþjónustu. Þá eru lífsgæði hinna feitu miklu minni en þeirra sem ná að halda sér í kjörformi. Fólk sem á erfitt með að hreyfa sig vegna þyngdar glímir við ákveðna fötlun. Það á erfiðara með gang og öll hreyfing reynir meira á það. Afleiðingin af langvarandi ofþyngd kemur síðan fram í alls konar sjúkdómum sem margir hverjir verða á endanum ólæknandi.

Hver króna sem ríkið leggur fram til árangursríkra forvarna skilar sér margfalt til baka. Einstaklingur sem er heilbrigður lifir mun betra lífi en sá sem rís varla undir sjálfum sér. Þá mun álagið á heilbrigðisþjónustuna minnka. Þarna er því kjörið að leggja peninga í framtíðarfjárfestingu. Það er hlutverk stjórnmálamanna að stuðla að heilbrigði þjóðar sinnar með skynsamlegum hætti.

Fyrir þá einstaklinga sem glíma við ofþyngd eða fíkn skal bent á að það er aldrei of seint að snúa við blaðinu. Fólk þarf í upphafinu að gera sér grein fyrir því að lífsgæðin felast í hvers konar hollri hreyfingu og mataræði sem lætur mönnum líða vel. Málið er í sinni einföldu mynd þannig að þú drepst úr leti. Stattu upp, slökktu á tölvunni eða sjónvarpinu og hættu að borða sykurhúðaðan óþverrann sem á undanförnum áratugum hefur lagt undir sig markaðinn og ógnar nú heilsu stórs hluta þjóðarinnar.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.