Það var leynimakkið og brallið sem gerði Ísland að þeirri gróðrarstíu spillingar sem á endanum felldi allt fjármálakerfið haustið 2008. Hjálparhellur spilltra viðskiptajöfra voru lögmenn sem eru þeirrar gerðar að svífast einskis. Þeir bjuggu til leyndarhjúpinn. Einhverjir héldu að þjóðin hefði lært það af hruninu að vert væri að sópað yrði út úr skúmaskotum og dagsbirtan fengi að njóta sín. En það er öðru nær.
Sú fræga sumarhöll Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, er komin í eigu aðila sem eru í myrkrinu. Forstjórinn stofnaði félagið Veiðilæk ehf. utan um höllina sem er ein af helstu táknmyndum bruðlsins sem átti sér stað í aðdraganda hrunsins. Allt þar til í síðasta mánuði var Sigurður eini eigandi félagsins. En þá gerðist það að skipt var um nafn á félaginu sem skyndilega heitir Rhea ehf. Jafnframt eru starfsmenn lögfræðistofunnar Virtus komnir í stjórn félagsins en Sigurður er afmáður. Þorkell Guðjónsson, framkvæmdastjóri Virtus, er stjórnarmaður. Hann er barn síns tíma því aðspurður neitar hann að upplýsa hver eigi leynifélagið og hvort hann sé leppur. „Það er bara einkamál eigenda félagsins,“ sagði hann við DV. Þetta er óboðlegt viðhorf. Málefni Sigurðar Einarssonar eiga öll að vera uppi á borðum. Hann er einn af stórlöxum hrunsins og það er ekki annað í boði en að fylgjast með fjármálagjörningum hans og fléttum.
Íslenska leyndarhyggjan er söm við sig þrátt fyrir áföllin. Þorkell hegðar sér nákvæmlega eins og bankarnir sem forstokkaðir afskrifa fyrir skuldakónga og bera við bankaleynd. Það er því ekki von á góðu í samfélagi þar sem hver um annan þveran hafði uppi áform um gagnsæi í kjölfar hrunsins.
Það er einnig lýsandi dæmi um íslenska þöggun og leyndarhyggju að ofstækisfólk hellti sér yfir DV fyrir að segja frá ástföngnu pari á Sólheimum sem var aðskilið af fullkomnu miskunnarleysi. Upp komu þær raddir að það mætti ekki upplýsa um málið þar sem það skaðaði orðspor Sólheima. Því miskunnarlausa fólki sem þannig talaði var sléttsama um þjáningar elskendanna sem eru úr hópi þess fólks sem hefur hvað minnst mannréttindi á Íslandi. Það er ömurlegt að uppi skulu vera þau viðhorf að leyndin eigi að hafa forgang. Það er nefnilega lykilatriði að horfast í augu við meinið ef lækning á að koma til. Þar skiptir ekki máli hvort um er að ræða brall gamals útrásarvíkings eða aðför að elskendum sem ekki geta borið hönd fyrir höfuð sér. Myrkrið skal umlykja skepnuskapinn þótt flestum megi vera ljóst að sannleikurinn gerir okkur frjáls.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013