Egill Einarsson, Gillzenegger, er saklaus. Hann er saklaus uns sekt sannast, eins og allir. Hvað sem sagt er um að hann hafi verið kærður þýðir það ekki að hann sé sekur, enda hafa fáir fullyrt nokkuð slíkt.
Þegar Egill var kærður fyrir nauðgun síðasta vetur sendi hann frá sér yfirlýsingu til fjölmiðla, þar sem hann sakaði átján ára stelpuna, sem kærði hann, um lögbrot: „Það er refisvert að saka fólk ranglega um lögbrot. Það er jafnframt refsivert að hafa samband við handrukkara í þeim tilgangi að kúga fé út úr fólki ... Tilgangurinn með þessum ásökunum er því augljóslega ekki að ná fram ákæru heldur einvörðungu að sverta mannorð mitt,“ sagði hann.
Hann vissi, eins og flestir, að í lýðræðisþjóðfélagi myndi fréttast ef maðurinn sem var settur framan á símaskrá landsmanna hefði verið kærður fyrir slíkan glæp, hvað þá maðurinn sem skrifar bækur fyrir unga menn um mannasiði og lífsleikni, leikur í sjónvarpsþáttum um sama efni og hefur verið gagnrýndur fyrir að ýta undir gildismat nauðgara með gríni um að láta menn beita nafngreindar konur kynlífsathöfnum til að þagga niður í þeim.
Yfirlýsing Egils leit út fyrir að vera þaulhugsað markaðsbragð – að vera fyrri til og sverta stelpuna opinberlega. En þegar allt kom til alls hafði stelpan ekkert til sakar unnið annað en að kæra hann fyrir nauðgun.
Flestum nauðgunarkærðum er vísað frá, en það er ekkert sem segir að þær séu allar að reyna að koma höggi á hinn kærða. Þegar fólk lendir í kynferðisofbeldi er nógu erfitt fyrir það að stíga skrefið og kæra, þótt það þurfi ekki að standa og falla með því að ákæra og dómur náist fram.
Margir gengu of langt gagnvart Agli Gillzenegger. Áberandi dæmi um það var þegar fyrirtækið Já, sem hafði gert hann að ritstjóra Símaskrárinnar, framleiddi sérstaka límmiða til að líma yfir mynd af honum, sem hann hafði sett framan á Símaskrána. Egill hefur hins vegar frá upphafi gert það sama og hann sakar aðra um; að ásaka og sakfella manneskju opinberlega fyrir glæp sem ekki hefur verið rannsakaður.
Þótt Egill Einarsson sé saklaus, þýðir það ekki að átján ára stelpan sem kærði hann sé sek.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum