Hin björtu teikn

Íslendingar mega enn sem komið er vera þakklátir fyrir það hvernig hefur gengið að komast út úr brimskafli bankahrunsins. Örlagadísirnar hafa hagað málum þannig að atvinnuleysi er á undanhaldi og flestir mælikvarðar á hag þjóðarinnar eru jákvæðir. Þetta er að hluta til ríkisstjórninni að þakka þótt öðrum þræði hafi ytri aðstæður svo sem velgengni í viðskiptum við aðrar þjóðir skipt miklu.

Það er innantómur áróður að halda því fram að efnahagsbatinn hér hafi átt sér stað þrátt fyrir ríkisstjórnina. Lýðskrumarar vilja ekki í neinu þakka ríkisstjórninni. Það er óboðlegur málflutningur. Það kann rétt að vera að batinn hafi verið hægari en efni stóðu til vegna þess að ríkisstjórnin hefur verið löskuð af innbyrðis átökum. Það kemur skýrt fram í örlögum kvótamálanna þar sem hin boðaða bylting endaði í hálfgerðu yfirklóri og vandræðagangi. Og það kemur fram í vandræðaganginum í kringum stjórnlagaþing og boðaðar lýðræðisumbætur þess. Af einhverjum stórundarlegum ástæðum er nú óvíst að þjóðin fái að kveða upp sinn dóm yfir breytingum á stjórnarskrá. Það kemur einnig fram í því að skjaldborgin um fjárhag einstaklinga varð aldrei fugl né fiskur. Þess í stað nutu skuldakóngar fyrirtækjanna sérstakrar velvildar eins og sjá má af niðurfellingum á milljarðaskuldum. Og það kemur fram í stöðugum núningi vegna aðildarumsóknar að Evrópusambandinu.

En þótt stjórnin hafi undanfarin ár skakklappast áfram þá eru teiknin góð. Það er sama hvar í flokki menn standa. Þeir verða að viðurkenna það sem vel er gert. Og það leikur enginn vafi á því að það er bjart yfir efnahag Íslands þessa dagana. Það má síðan velta upp ástæðum þess að svo er komið. Hugsanlega skipti þar sköpum að ríkisstjórnin fylgdi fyrirmælum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og tókst þannig að vinna sig út úr vonlítilli stöðu.

En þrátt fyrir hin björtu teikn hagvísanna eru dökk ský úti við sjóndeildarhringinn. Enginn veit hvernig deilunni um Icesave lyktar fyrir dómstólum. Þar gæti í versta falli verið framundan gríðarlegt efnahagslegt áfall. Fari svo er ekki hægt að kenna ríkisstjórninni um. Það voru aðrir sem snéru þjóðarskútunni frá samningaleiðinni og inn í dómsal. Þau mál skýrast í haust. Einnig er óljóst hvernig við ætlum að losa um gjaldeyrishöftin án þess að verða fyrir stórskaða. En hvað sem öðru líður væri ósanngjarnt að þakka ekki þeim sem voru við stjórn þann ávinning sem hefur náðst í efnahagsmálum við illbærilegar aðstæður.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.