Friðrik og Birna

Innan íslensku bankanna hefur spilling þrifist í skjóli leyndar. Í aðdraganda hrunsins keyrði um þverbak þar sem eigendur og starfsmenn bankanna stigu trylltan dans í því skyni að auðgast persónulega. Bankastjórar voru á slíkum ofurlaunum að annað eins hefur ekki sést – hvorki fyrr né síðar. Krosseignarhald var áberandi og menn veðsettu á víxl. Stórir eigendur stýrðu bönkunum með því að hafa veiklundaða bankastjóra undir hælnum. Þetta átti sér stað í Landsbankanum og Glitni. Í Kaupþingi var í raun það sama uppi á teningnum. Bankinn gerði verkalýðsleiðtoga að þægum þjóni með umbun.

Eftir hrunið kallaði þjóðin eftir uppgjöri og því að gömlum eigendum og stjórnendum yrði kastað út til þess að hefja mætti endurreisnina. Það kom í hlut Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar, sem leiðtoga stjórnarflokkanna, að hreinsa til. Þau brugðust á vaktinni og leyfðu leyndinni að vera áfram. Það er því engin leið að átta sig á því sem er að gerast að tjaldabaki.

Ljóst að himinn og haf er á milli þeirra kjara sem almenningur nýtur þegar litið er til afskrifta og þess sem höfðingjarnir fá. Þingmaðurinn Björn Valur Gíslason bendir á það á bloggi sínu að Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, hafi í annað sinn fengið niðurfellingu skulda sinna. Fimm milljarðar hafa gufað upp. Við kaup núverandi eigenda blaðsins, sem stýrt er af Davíð Oddssyni, voru felldir niður milljarðar króna af skuldum sem félagið hafði safnað. Nú bætist við annar skammtur af skuldaniðurfellingu. Stærstu eigendur Árvakurs eru stórútgerðarmenn sem hafa greitt sjálfum sér milljarða króna í arð á undanförnum árum.

Eigendurnir ættu að vera vel færir um að borga skuldirnar. Hvað útskýrir þessa linkind bankans gagnvart vellauðugum útgerðarmönnum og fyrrverandi forsætisráðherra, á sama tíma og almenningur fær litla miskunn? Birna Einarsdóttir, bankastjóri og stjórnarformaður bankans, Friðrik Sophusson, fyrrverandi ráðherra og undirmaður Davíðs Oddssonar ritstjóra, verða að gera öðrum viðskiptavinum bankans grein fyrir því hvort allir njóti sömu kjara. Getur venjulegur skuldari komið í bankann og fengið endurtekna niðurfellingu? Getur maður sem á tvær krónur lagt þær inn á skuldareikning sinn og fengið niðurfellda krónu í staðinn? Hvernig er þetta eiginlega Birna? Ertu nokkuð að mismuna þínu fólki?

Leyndarhjúpurinn er ekki bundinn við Íslandsbanka einan. Landsbankinn, sem er alfarið í eigu ríkisins, er á útopnu í leyndargjörningum. Fjárfestingafélagið Horn er í eigu bankans og undir stjórnarformennsku bankastjórans, Steinþórs Pálssonar. Þegar DV birti gögn um brallið í Horni lét bankinn setja lögbann á birtingu. Nokkrum mánuðum síðar var fallið frá banninu fyrir dómstólum og bankinn tapaði peningum á uppátækinu.

Allir íslensku bankarnir eiga það sameiginlegt að leyna þeim gjörningum sem snúa að niðurfellingum á skuldum auðmanna. Á sama tíma er litla fólkið blóðmjólkað og engin leið að leiðrétta umfram þá 110 prósenta reglu sem var ákveðin.

Með réttu ætti að upplýsa um allar niðurfellingar skulda á vegum banka sem eru yfir 100 milljónum króna. Annað er óboðlegt í samfélagi sem er í sárum eftir óreiðumenn í stjórnmálum og viðskiptum. Sérhagsmunagæslunni verður að linna og leyndin að víkja. En til þess er líklega engin von á meðan fólkið í landinu lætur bjóða sér misréttið.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.