Innvígður dómari

Vinirnir tryggðu áhyggjulaust ævikvöld.

Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari var skipaður í starf af flokksbræðrum sínum. Eftir rúmlega átta ára umdeilda setu hefur hann nú ákveðið að víkja með gulltryggða framtíð.

Á sama tíma og flestir almennir launþegar landsins þurfa að sæta miklum skerðingum á lífeyri sendir hæstaréttardómarinn feitan reikning á ríkissjóð. Almenningur í landinu á að borga yfir 800 þúsund krónur á mánuði til æviloka Jóns Steinars svo hann geti haldið fullum launum. Þessi sami almenningur má þakka fyrir að fá aðeins brot af sínum tekjum til baka þrátt fyrir að hafa alla sína ævi greitt í lífeyrissjóði. Lífeyriskjör Jóns Steinars eru dæmi um það bruðl og óráðsíu sem einkennir samfélag okkar. Vinirnir tryggðu áhyggjulaust ævikvöld á kostnað skattborgara þótt engin rök væru fyrir slíkum verðlaunaveitingum til handa lögfræðingi sem hvergi hafði skarað fram úr. Innmúraður og innvígður eru þau orð sem koma upp í hugann þegar umræddur dómari er nefndur.

Ferill Jóns Steinars í Hæstarétti er ekki ólíkur aðdraganda ráðningarinnar. Hann var ráðinn þótt lög kveði á um að fyrst skuli metið hæfi umsækjenda en síðan hæfni. Jón Steinar var í hópi þeirra sem metnir voru hæfir. Þegar kom að hæfninni var hann á aftasta bekk. En hann var í Sjálfstæðisflokknum sem fór með það vald að skipa dómara. Flokksbróðir Jóns Steinars, Geir H. Haarde, brást honum ekki og hann var tekinn fram fyrir í röðinni og gerður að dómara við æðsta dómstól Íslands. Jón Steinar var skipaður í stað sjálfstæðismannsins Péturs Kr. Hafstein, sem hætti í starfi sínu í blóma lífsins eftir tiltölulega skamma setu. Átta árum síðar koma ávextir spillingarinnar í ljós þegar hann stendur upp, 65 ára, og fær upp undir 900 þúsund krónur í eftirlaun eftir hlutastarfið. Og ríkissjóður er líka skuldbundinn gagnvart Pétri Kr. Hafstein sem getur tekið eftirlaun þegar honum sýnist. Þau gefa vel af sér hlutastörfin í Hæstarétti.

Íslenska spillingin birtist í sinni verstu mynd þegar Jón Steinar var ráðinn. Þarna var á ferðinni spilafélagi og vinur æðsta manns Sjálfstæðisflokksins, Davíðs Oddssonar. Annar einstaklingur, Ólafur Börkur Þorvaldsson, var einnig skipaður af Sjálfstæðisflokknum til þess að sitja í Hæstarétti. Sá var, rétt eins og Jón Steinar, hæfur en stóð flestum öðrum umsækjendum að baki í hæfni. En hann er frændi Davíðs. Fjölmargar aðrar skipanir dómara á lægra dómsstigi eru tengdar flokknum. Þar má nefna Þorstein Davíðsson, soninn sem hreppti dómaraembætti á Akureyri. Þessar staðreyndir eru ömurlegur vitnisburður um stjórnarfar sem ekki hefði átt að tíðkast í þroskuðu lýðræðisríki.

Allur almenningur hlýtur að rísa gegn því að svona lagað geti átt sér stað. Það hlýtur að vera skýlaus krafa að lögum og stjórnarskrá verði breytt í þá veru að dómarar og aðrir í grennd við spena ríkisins lúti sömu kjörum og venjulegt fólk. Og það er nauðsynlegt að taka þann kaleik frá flokkum með veikt siðferði að þurfa að skipa dómara. Það má ekki gerast að minnipokamenn með flokksskírteini geti orðið tilberar á ríkissjóði.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.