Svarthol í Keflavík

Það áfall sem ríkissjóður hefur orðið fyrir vegna Sparisjóðs Keflavíkur er með slíkum endemum að nauðsynlegt er að ítarleg rannsókn fari fram á stjórnendum sparisjóðsins og aðkomu ríkisins við yfirtökuna. Hinn pólitíski þáttur málsins má ekki verða útundan í þeirri skoðun. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra er helsti ábyrgðamaður þess gjörnings að fella sparisjóðinn undir Landsbankann.

Í upphafi var látið í veðri vaka að yfirtakan á hinum volaða sparisjóði myndi ekki kosta skattgreiðendur mikið. Nú er komið á daginn að reikningurinn hljóðar upp á 25 milljarða króna. Það er ekki í boði að skattgreiðendur taki á sig slíka byrði án þess að upplýst verði að fullu um ábyrgð þeirra sem stýrðu bankanum í þrot og síðar þeirra sem skrifuðu upp á yfirtökuna.

Saga Sparisjóðs Keflavíkur í seinni tíð er mörkuð spillingarfnyk þar sem vinir skiptust á lánum. Í Keflavík gengu menn á skítugum skónum um fjárhirslur bankans og krosslánuðu hverjir öðrum. Hagsmunaþræðir spillingar lágu lágu um stjórn sparisjóðsins, bæjarstjórnina og meira segja inn í verkalýðsfélagið. Sukkið var takmarkalítið. Það er nauðsynlegt að rekja alla þessa þræði upp og skoða hvað fór úrskeiðis.

Afleiðingarnar af hruni sparisjóðsins eru um allt land. Stórveldisdraumar stjórnenda Sparisjóðs Keflavíkur voru miklir í allri óráðssíunni. Þeir sölsuðu undir sig sparisjóði um allt land og nú stendur eftir sviðin jörð. Fjöldi stofnfjárfesta er í sárum fjárhagslega. Sumir misstu allt sitt og eru á vonarvöl. Og byggðarlög misstu bankaútibú sín ofan í svartholið í Keflavík.

Afleiðingarnar af framgöngu þeirra sem stýrðu sparisjóðnum í Keflavík eru hrikalegar. Fólk og byggðarlög eru í sárum eftir spillingarkennda óreiðuna. Bæði fyrrverandi og núverandi fjármálaráðherra hafa vísað ábyrgðinni á stjórnendur sparisjóðsins og benda á að eignasafn sparisjóðsins sé rýra en gert hafi verið ráð fyrir. Það kann að vera rétt mat en eigi að síður verður að skoða þátt stjórnvalda í málinu og fá fram pólitíska ábyrgð.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.