Kvótann í þjóðaratkvæði

Mynd: Mynd Eyþór Árnason

Ríkisstjórnin þarf að standa föst fyrir hvað varðar breytingu á kvótakerfinu og upptöku á sanngjörnu veiðileyfagjaldi. Sátt verður að nást um það hvernig málum er skipað hvað varðar sameign þjóðarinnar allrar. Og almenningur verður að kveða upp úr um það gjald sem rennur í ríkiskassann vegna þeirra einkaleyfa sem úthlutað hefur verið til veiða.

Stöðugur áróður hefur dunið á fólkinu í landinu vegna fyrirhugaðra breytinga á kerfinu. Grátkór útgerðarmanna er á hæstu tónum vegna þess að ekki sé viðhaft samráð við þá um kvótann og það gjald sem tekið verður vegna veiðanna. Í þeirri gagnrýni gleymist það vopnaskak sem einstakir forsvarsmenn útgerðarmanna hafa viðhaft gegn lýðræðislega kjörnum stjórnvöldum í landinu. Miskunnarlaust hefur einstökum fjölmiðlum í eigu útgerðarvíkinganna verið beitt til að niðurlægja stjórnvöld í landinu og koma á þau höggi. Og morð fjár hefur verið eytt í ógeðfelldar áróðursauglýsingar sem ætlað er að vekja samúð með útgerðinni og klekkja á ríkisstjórnarflokkunum. Þeir hafa einskis svifist í baráttu sinni.

Hápunktur baráttu útgerðarmanna var þegar þeir sendu skip sín til Reykjavíkur og hásetar á launum mættu á Austurvöll til að styðja við baráttu vinnuveitenda sinna. Ekki er staðfest að sjómönnum hafi beinlínis verið fyrirskipað að mæta til mótmæla en upplýst hefur verið að fiskverkafólk fékk í einu tilviki frí á launum og áfengi fyrir að stíga upp í rútu og halda á vettvang mótmælanna. Sjómennirnir sem stóðu á Austurvelli til að sýna yfirboðurum sínum stuðning eru þeir sömu og hafa slag í slag verið sendir nauðugir á haf út með lagaboði vegna þess að ekki náðust samningar við útgerðina. Þetta eru menn sem hafa í þeim skilningi sætt ofbeldi bæði atvinnurekenda og stjórnvalda en láta samt draga sig inn í deilu af því tagi sem nú stendur. Stokkhólmsheilkenni, kynni einhver að segja.

Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur má hvergi hvika. Stjórnarflokkarnir eiga þann leik í stöðunni að keyra í gegn frumvörpin tvö um kvótakerfi og veiðileyfagjald undir því fororði að veiðileyfagjaldið fari undanbragðalaust í þjóðaratkvæði. Þar með fær þjóðin að eiga síðasta orðið um leigugjaldið. Og þá mun Sjálfstæðisflokkurinn, sem stefnir í næstu ríkisstjórn, ekki með góðu móti geta afnumið lögin eða veiðigjaldið, eins og þeir hafa hótað. Það er því nauðsynlegt að kalla eftir þjóðarvilja. Og það verður að tryggja að áróðursmaskínu LÍÚ verði mætt með auglýsingum sem lýsa hinu sjónarhorninu. Þetta er sú lýðræðislega leið sem allir ættu að geta fallist á.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.