Nýju fötin forsetans

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur verið næmur á hjartslátt þjóðarinnar. Á forsetaferli sínum hefur hann tekið margar pólitískar beygjur og hallað sér að þeim sem hverju sinni nýttust honum. Í upphafi var bakland hans að finna á vinstrivæng stjórnmálanna þaðan sem hann kom. Hann var grjótharður andstæðingur Sjálfstæðisflokksins og lagði sig eftir átökum við foringja flokksins. Hann var í andstöðu við þá sem réðu í stjórnarráðinu og uppskar bæði hatur og hlýju. Fyrsti hluti forsetatíðar hans litaðist mjög af þessum átökum sem þó snérust ekki um málefni heldur persónur.

Snautlegasta skeiðið á forsetaferli Ólafs Ragnars er örugglega þegar útrásarvíkingarnir voru vinir hans og uppskáru heiðursorður og stöðugt skjall. Þá var íslenska útrásin að hans sögn eitthvert merkilegasta fyrirbæri heims. Forsetinn gerði svo sem ekki annað en að spegla þann tíðaranda sem þá var uppi. Og hann virkjaði peningaöflin í sína eigin þágu og baðaði sig í ljóma gullætunnar.

Eftir hrunið snéri forseti Íslands baki við vinum sínum í útrásinni. Hann gerðist maður fólksins. Mótmælendum var boðið í kaffi á Bessastöðum og Ólafur Ragnar fundaði um allt land með fólki sem var í sárum vegna hrunsins. Hann fann sér nýja vini og gerði ágætis gagn með því að blása fólki kjark í brjóst. Og hann virkjaði þjóðaratkvæðagreiðslur sem varð til þess að stór hluti fólksins í landinu tók hann í sátt.

Nú stendur Ólafur Ragnar á þeim krossgötum að þurfa í kosningum að berjast við nokkurn fjölda manns um forsetaembættið. Og það blæs ekki byrlega fyrir gamla forsetann sem í skoðanakönnunum mælist með minna fylgi en Þóra Arnórsdóttir. Forsetinn gæti fallið í kosningum sem yrðu hrikaleg endalok á ferli sem hefur verið umdeildur en alltaf glæstur. Ólafur Ragnar er eldri en tvævetur í pólitík og hann þekkir lyktina af peningum og valdi. Hann hefur boðið nýjum vinahópi til fylgilags. Að þessu sinni er það ein umdeildasta stétt Íslands, útgerðarmennirnir sem eiga fiskinn í sjónum. Ólafur hóf kosningabaráttu sína í Brussel með því að mæra íslenska kvótakerfið. „Þetta vísindalega kvótakerfi …“ eins og hann orðaði það. Með þessu tryggir hann sér stuðning útgerðarmanna sem ráða yfir gríðarlegu fjármagni og stjórna einhverjum fjölmiðlum. Hið nýja bakland hans skipa sumir þeirra sem í upphafi ferilsins fyrirlitu forsetann vegna skoðana hans og verka. Þegar litið er yfir feril forsetans er þetta furðulegasta umbreyting hans og einkenni um að honum sé ekkert heilagt þegar kemur að því að halda völdunum. Hann hefur eignast nýja vini og tekið upp skoðanir þeirra. Þetta eru nýju fötin forsetans. Í sumar kemur í ljós hvort almenningur hleypur í þá áttina sem útgerðin bendir.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.