Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða þess bætur. Meðal annars var reynt að klippa af henni fingur og hún var beitt grófu kynferðislegu ofbeldi. Aðkoman var beinlínis skelfileg og unga konan var milli heims og helju. Nokkrum dögum eftir þessa árás var aftur ráðist á hana í því skyni að brjóta hana niður líkamlega og andlega. Undanfarna fimm mánuði hefur hún verið undir vernd og í felum fyrir ofsóknafólki sínu. Það varð þó ekki til þess að ofsóknunum linnti því kveikt var í bifreið hennar sem brann til ösku. Það er ótrúlegt að svona hlutir geti gerst í litlu, friðsömu landi.
„Ég gjörsamlega missti trúna á mannfólkið," sagði hún við DV um líðan sína eftir þessa atburði. Enginn þarf að efast um að það er stórt skref hjá ungu konunni að vitna fyrir dómi og stíga fram og segja sögu sína. Alltof margir láta kúga sig til að þegja um illvirkin og gefa þannig glæpahyskinu aukið afl.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur skorið upp herör gegn þeirri villimennsku sem fylgir ákveðnum glæpasamtökum. Ráðherrann hefur sýnt þann kjark að lýsa stríði á hendur þeim sem gera út á ofbeldi og ótta. Saga Berglindar undirstrikar þörfina á því að spyrna fast við fótum gegn þeirri fúlmennsku sem fylgir umræddum glæpasamtökum. Sjálf á hún virðingu skilið fyrir þann kjark að rísa gegn ofbeldisfólkinu sem reyndi að brjóta hana niður með grófara ofbeldi en Íslendingar eiga að venjast. Það er hlutskipti Berglindar að þurfa að vera í felum og á flótta undan kvölurum sínum. „Ég hef ekkert frelsi til að gera eitt eða neitt, ég get ekki verið á opinberum stöðum, get ekki talað við neinn ...,“ sagði Berglind við DV.
Samfélagið verður að leggjast á eitt til þess að fyrirbyggja viðbjóð á borð við það sem gerst hefur í lífi Berglindar. Allir verða að leggjast á eitt með yfirvöldum til að fjarlægja illgresið úr samfélaginu. Enginn má þar hvika. Kjarkur Berglindar verður að blása öðrum í brjóst það áræði sem þarf til að fara gegn illvirkjunum og eyða þessu illgresi.
Þá þarf að hlúa að ungu konunni með öllum ráðum og tryggja svo sem auðið að hún verði ekki fyrir frekari árásum. Staða hennar er ömurleg og óttinn er við hvert fótmál. „Ég þarf að flytja í burtu frá Íslandi ef ég vil eiga eitthvert líf,“ segir Berglind sem enn er í felum. Þeir sem réðust inn á heimili hennar bíða dóms.

Hemmi Gunn fallinn frá