Velkominn, Nubo

Meðferð Íslendinga á kínverska athafnamanninum Huang Nubo er skammarleg. Þessi kínverski fjárfestir vildi koma með milljarðafjárfestingu til Íslands og reisa hótel á Grímsstöðum á Fjöllum en var illa tekið. Ráðherra innanríkismála þvældi málum hans fram og til baka og á endanum var honum með vísan til laga bannað að kaupa jörðina. Óttinn við áhrif útlendinga eða jafnvel fordómar virtust ráða för hjá þeim sem brugðu fæti fyrir Kínverjann. Undirliggjandi var að áform ­Nubos væru teikn um að Kínverjar væru að koma til Íslands í slæmum tilgangi. Fyrir Norðlendinga var niðurstaðan áfall. Það sem hefði getað orðið vítamínsprauta fyrir ferðaþjónustu á svæðinu varð að engu. Á endanum virtist Nubo vera orðinn fráhverfur því að fjárfesta á Íslandi. Niðurstaðan varð íbúum svæðisins mikil vonbrigði. Bergur Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings, fór til Kína til að reyna að greiða úr flækjunni sem innanríkisráðherra hafði valdið.

Staða þessa máls í kjölfar höfnunar ráðherra var hörmung. Útlendingur sem vildi fjárfesta fyrir milljarða króna varð frá að hverfa. Hingað voru aðeins hrægammar vogunarsjóðanna velkomnir. Svo virtist sem þjóðin ætti sér vart viðreisnar von. Því góða sem gat gerst var umsvifalaust bægt frá af misvirtum stjórnmálamönnum.

En nú virðist vera að rofa til. Nubo er á góðri leið með að semja um langtímaleigu á Grímsstöðum á Fjöllum. Hann mun því væntanlega koma rekstri sínum upp á svæðinu. Og umsvifin verða ekkert smáræði ef marka má þær upplýsingar vefritsins Forbes að Nubo hyggist fjárfesta á Norðurlandi fyrir 200 milljónir dollara.

Það er ástæða til að fagna niðurstöðunni. Koma Nubos á Grímsstaði getur ekki orðið nema til góðs. Gríðarleg fjárfesting manns sem hefur trú á Íslandi getur ekki annað en gefið íslenskri þjóð bjartsýni og trú á framtíðina. Og flestir Íslendingar hljóta að bjóða Huang Nubo velkominn með fjárfestingar sínar. Þetta er tákn um nýja tíma og eitt það jákvæðasta sem gerst hefur síðan hrunið varð árið 2008.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.