Okurlánin innheimt

Um þessi mánaðamót fá þúsundir skuldara banka og fjármálafyrirtækja kröfur um að greiða af skuldabréfum sem sterkar vísbendingar eru uppi um að séu ólögleg. Hæstiréttur Íslands felldi dóm í þá veru. Og í stað þess að bregðast við og semja við skuldara er keyrt áfram af fullri hörku og viðskiptavinirnir miskunnarlaust rukkaðir. Samlíkingu við þessa framgöngu er helst að finna í samtökum undirheima sem einhliða verðleggja kröfur og innheimta síðan með ofbeldi.

Þingmaðurinn Lilja Mósesdóttir og hluti stjórnarandstöðunnar hefur látið sig miklu varða málefni skuldara í landinu. Hún lýsir ástandinu þannig að stutt sé í að sjóði upp úr nú þegar fólk upplifir að sáralítill munur er á bönkunum og ótíndum handrukkurum. Stofnanir sem eiga að vera reknar með sanngirni og heiðarleika að leiðarljósi beita fantabrögðum og verðleggja skuldir viðskiptavina einhliða og láta sig í engu varða rétt eða rangt. Svívirðan er sýnileg öllum þeim sem vilja á annað borð opna augu sín fyrir því að óskráðar siðareglur fjármálastofnana eru þær sömu og hjá samtökum sem starfa neðanjarðar.

Ríkisstjórn og Alþingi virðast vera ráðalaus. Löggjafinn aðhefst ekkert þótt Hæstiréttur landsins hafi sent út skýr skilaboð um ólögmæti gengis-lánanna. Í stað þess að bregðast strax við er sama ömurlega aðgerðaleysið ríkjandi. Allt er látið reka á reiðanum í von um að það fenni í sporin og fólkið láti svíðingana vaða yfir sig á skítugum skónum. Öflug og góð ríkisstjórn hefði einfaldlega beitt sér fyrir því að löggjafinn kæmi með þá lausn sem dygði. Vandinn er hins vegar sá að ríkisstjórnin er máttvana og Alþingi fyrir löngu heillum horfið. Hagsmunir hrægammasjóða og annarra bankaeigenda eru í öndvegi, sem fyrr. Fólkið finnur sig svikið. Skjaldborgin reis aldrei. Og þegar æðsti dómstóll landsins fellir þann úrskurð að ólögleg okurlán séu í umferð og innheimtu, þá ríkir þögnin. Það táknar það eitt að helstu ráðamenn Íslands eru samþykkir því ofbeldi sem á sér stað.

Það er alls ekki víst að Lilja Móses¬dóttir hafi rétt fyrir sér hvað það varðar að nú sjóði upp úr. Kannski er fólk gengið inn í píslarvættið og lætur ofbeldisöflin komast upp með lögleysuna. Það ætti þó að vera skylda hvers einasta manns að berjast með öllum lögmætum aðferðum gegn því sem er að gerast. Almenningur verður að refsa þessu liði sem rukkar skuldir með sama hugarfari og harðsvíraðir glæpamenn. Og það þarf líka að refsa þeim sem láta lögleysuna og fantaskapinn viðgangast.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.