Snorri Óskarsson barnaskólakennari hefur sagt að hann myndi reyna að tala við nemanda, ef í ljós kæmi að hann væri haldinn syndinni samkynhneigð.
Þingmaðurinn Árni Johnsen hneykslaðist yfir því á Alþingi að kennari á Akureyri hefði verið settur í leyfi eftir að hafa birt skrif um óeðli og syndir samkynhneigðra.
Margir aðrir hafa stigið fram og lýst því sem skerðingu á tjáningarfrelsi Snorra Óskarssonar kennara að hann fái ekki að enduróma úthrópunina á samkynhneigðum sem finna má í Gamla testamentinu. Rökin eru annars vegar að hann hafi tjáningarfrelsi í frítíma sínum og hins vegar að andstaðan gegn samkynhneigðum eigi sér trúarlegar rætur. Árni segir að það sé „ofbeldi og valdníðsla“ og vanvirðing við mannréttindi, skoðanafrelsi og trúfrelsi, að kennarinn hafi verið settur í leyfi og beðinn að tala ekki svona opinberlega um samkynhneigða.
Að sögn Snorra er „samkynhneigðin skilgreind sem synd en ekki fötlun“. Kjarninn í afstöðu Snorra til samkynhneigðra er að þeir eigi að bæla niður kynhneigð sína og að samkynhneigð sé röng. Með sama hætti ætti að bæla hana niður eins og dýraníðs- og barnaníðshneigðir. „Maðurinn er ákaflega veikur fyrir óeðlinu,“ sagði Snorri, og varaði við afleiðingum óeðlisins. Til dæmis hafi heimsveldi Súmera hrunið vegna „óeðlisins“ og því má ætla að samkynhneigð sé hrunvaldur: „Hrunið hófst með því að óeðlið óx og ríkið hrundi innanfrá. Faraóar Egypta, þeir urðu úrkynjaðir vegna óeðlis. Þessi rök mín eru ekki vegna illgirni heldur til að við mættum skoða okkar gang. Hvert stefnir Ísland, og þú?“
Að mati Árna Johnsen er það réttur Snorra að væna samkynhneigða opinberlega um óeðli og að vera um leið kennari. Forsendan fyrir þeirri skoðun hlýtur að vera að samkynhneigðir geti ákveðið að hætta að vera samkynhneigðir. Þetta sé ekki „fötlun“ heldur syndugur lífsstíll. Annars væri lítill munur á þessu og að verja það að kennari boðaði rasisma í frítíma sínum.
Snorri má básúna skoðanir sínar á þjóðfélagshópum eins og hann vill. En maður sem gerist opinber málsvari fyrir því að úthrópa ákveðna samfélagshópa er ekki æskilegur barnaskólakennari. Rasistar ættu ekki heldur að vera kennarar, og ekki menn sem halda því fram að konur séu óæðri en karlmenn.
Snorri var beðinn að hætta að blogga með þessum hætti ef hann ætlaði að vera kennari, en hann sagðist ætla að halda áfram. Hann býst við því að fólk bæli kynhneigð sína. Hann ætti þá að geta hamið hvatir sínar til að tjá fordóma sína opinberlega. Barátta Árna Johnsen er fyrir umburðarlyndi gagnvart fordómum. Venjulega skipta fordómafull skrif litlu máli, því enginn nennir að lesa þau. En þeir sem úthrópa fólk opinberlega vegna kynhneigðar, kynþáttar eða kynferðis, eiga ekki að kenna ómótuðum börnum. Annars kennum við börnum að fordómar séu í lagi.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Fyrirmyndarfangi
Kjarkur Berglindar
Slímkenndur áróður
Samfélag óttans
Ólafur Ragnar og aðferð Davíðs
