ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Árásir stjórnmálamanna

Jón Trausti Reynisson jontrausti@dv.is
11:00 › 15. febrúar 2012
Bjarni Benediktsson og Ögmundur Jónasson hafa sakað fjölmiðla um óheilindi eftir að fjallað var um aðkomu þeirra að viðskiptum.

Bjarni Benediktsson og Ögmundur Jónasson hafa sakað fjölmiðla um óheilindi eftir að fjallað var um aðkomu þeirra að viðskiptum.

Það er aftur að komast í tísku meðal stjórnmálamanna að ráðast á fjölmiðla fyrir að segja fréttir af þeim. Þeir tala um árásir og væna síðan fjölmiðla eða fjölmiðlamenn um gróf óheilindi, án þess að rökstyðja ásakanir sínar.

Ögmundur Jónasson hefur verið til umfjöllunar að undanförnu vegna þess að hann var stjórnarformaður og stjórnarmaður í Lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna, sem tapaði 100 milljörðum króna. Hann bar formlega ábyrgð á lífeyrissjóði sem tapaði á braski, þrátt fyrir að hafa sjálfur gagnrýnt braskið opinberlega. Það var braskað á hans ábyrgð. Hann kenndi því um að braskið hefði verið lögfest þegar lífeyrissjóðirnir hefðu verið skyldaðir til að sækjast eftir hámarksávöxtun. Í Kastljósinu sagði hann að umrædd lög hefðu verið „stórkostlega hættuleg“ og að hann hefði staðið gegn þeim á sínum tíma. „Það var einn maður á Alþingi sem andmælti þessu og hann situr hér.“ Síðan kom í ljós að hann hafði ekki greitt atkvæði gegn lögunum, heldur með þeim. Um það birtist auðvitað ný frétt, sem Ögmundur svaraði með árásum á fjölmiðilinn.

Í kjölfarið hefur Ögmundur skrifað greinar í Morgunblaðið og Fréttablaðið þar sem hann réðst gegn Ríkisútvarpinu fyrir að segja fréttina. Hann sakaði fréttamennina um „hefnigirni“ og „óheiðarleika“, að því er virðist vegna þess að þeir sögðu fréttina, þrátt fyrir útskýringar hans um heildarsamhengi hlutanna.

Umfjöllunin um störf Ögmundar setur orð hans í samhengi við verk hans. Það sama hefur gerst með afstöðu Steingríms J. Sigfússonar til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og afstöðu Jóhönnu Sigurðardóttur til verðtryggingarinnar, svo eitthvað sé nefnt.
Margir muna eftir því þegar Davíð Oddsson hjólaði í spyrla Kastljóssins, þegar Geir H. Haarde hellti sér yfir G. Pétur Matthíasson, eða þegar Björgólfur Guðmundsson reyndi að kaupa DV til að leggja það niður.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, svarar nú fréttum um aðkomu sína að vafasömum viðskiptum með árásum á sendiboðann. DV birti nýlega frétt um að Bjarni hefði fengið umboð og skrifað undir veðsamning til að veðsetja hlutabréf í Vafningi, í viðskiptafléttu sem sérstakur saksóknari lítur á sem lið í því að hylja hræðilega stöðu Glitnis meira en hálfu ári fyrir hrun. Frétt DV snerist um að umboð Bjarna var dagsett aftur í tímann. Bjarni svaraði í yfirlýsingu til fjölmiðla, og síðar í Kastljósi RÚV, og réðst á DV fyrir að flytja fréttina, með alvarlegum, órökstuddum ásökunum í garð fjölmiðilsins og starfsmanna hans.

„Hér er enn og aftur um innihaldslausar pólitískar árásir í minn garð að ræða. Augljóst er að þær eru settar fram nú fyrst og fremst í tilefni af ákveðnu þingmáli sem ég hef mælt fyrir á Alþingi.“ Rakalaus árás Bjarna snýst um að DV birti fréttir um aðkomu hans að vafasömum viðskiptum vegna þess að Bjarni hafi lagt fram frumvarp á Alþingi um að afturkalla ákæru gegn Geir H. Haarde til landsdóms. Bjarni er ekki beðinn um rök eða staðfestingu á ásökunum sínum, enda eru árásir á fjölmiðlafólk hluti af stjórnmálamenningunni.

Þessi umræðutaktík snýst um að forða ákveðnum einstaklingum frá umræðu, með því að koma höggi á þá sem starfa við fréttir. Þeir gera kröfu um að siðferðisviðmið og umræða í samfélaginu aðlagist þörfum þeirra, frekar en að þeir aðlagist samfélaginu og samfélagsumræðunni. Þeir búa til skotgrafir til að losna við umræður um óþægilegar staðreyndir. En Ísland þarf ekki á þessu að halda. Hagsmunir samfélagsins eru að tala um fleira og segja frá meiru. Við þurfum að opna umræðuna og auka gegnsæi. Bara þannig komum við í veg fyrir að aðstæður skapist fyrir annað hrun sem enginn kannast við að bera ábyrgð á og enginn vissi að gat orðið.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?