ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Til hamingju, Lilja

13:16 › 13. febrúar 2012

Það eru stórtíðindi að Samstaða, flokkur Lilju Mósesdóttur, skuli mælast með allt að fjórðungsfylgi í skoðanakönnunum. Þessi niðurstaða felur í sér skýr skilaboð um það að kjósendur vilja nýjar áherslur á Alþingi og nýtt blóð. Þetta er því alvarleg viðvörun til þeirra sem nú sitja á þingi og ná augljóslega ekki að sannfæra fólk um að þau séu að vinna vinnuna sína.

Lilja Mósesdóttir hefur verið utangarðs í íslenskri pólitík. Hún komst á þing undir merki Vinstri-grænna. Málflutningur hennar var sá að mikilvægast væri að slá skjaldborg um heimilin og lækka skuldir fórnarlamba hrunsins. Ekki er fjarri lagi að Lilja hafi verið beitt andlegu ofbeldi innan síns eigin flokks. Mál hennar hlutu ekki hljómgrunn og smám saman hraktist hún út úr flokknum og út á berangur einyrkjans í pólitík. Það væri ósanngjarnt að halda því fram að stjórnarflokkarnir hafi ekkert gert til þess að milda sársauka skuldugra fjölskyldna. Vandinn er hins vegar sá að ekki er nóg að gert og það er tilfinning fólks að hrægammar vogunarsjóðanna eigi sér skjól í skjaldborginni sem ætluð var almenningi. Þess vegna beinast augu fólksins að Lilju eða öðrum þeim sem líklegir eru til þess að taka hagsmuni almennings fram yfir hagsmuni þeirra sem ekki þurfa á neinni hjálp að halda.

Nú bendir allt til þess að Lilja muni fóta sig aftur í pólitík og að þessu sinni með sína eigin stefnu. Jafnframt felst í þessu ógn við þá flokka sem fyrir eru. Samfylking og Vinstri-grænir eru að gjalda fyrir stjórnarsetuna og þann aulahátt sem birtist fólki í mislukkaðri skjaldborg. Sú staðreynd að stjórnarandstöðuflokkarnir eru ekki að sópa til sín fylgi bendir til þess að óþol almennings nái til allra stjórnmálaflokka. Vantraustið á sér rætur í því að þingheimi hefur ekki auðnast að vinna saman að björgun þjóðarbúsins. Allt gengur út á blóðug pólitísk slagsmál þar sem liðin skipast nákvæmlega eftir flokkum. Ætla mætti að allir sjálfstæðismenn væru þannig sömu skoðunar í öllum stórum málum líkt og allir samfylkingarmenn. Þetta er auðvitað rugl og lýsir því ömurlega ástandi sem er í íslenskum stjórnmálum. Skynsemi hins hugsandi manns er víðs fjarri og allt gengur út á flokkadrætti.

Von fólksins í landinu liggur í því að Lilja Mósesdóttir og hennar fólk nái að hrista þannig upp í íslenskum stjórnmálum að heilindi og samvinna taki við af sundrung og flokkadráttum. Það er æskilegt að kosningar fari sem fyrst fram og nýir þingmenn eða gamlir með nýtt umboð verði ráðnir í vinnu fyrir þjóðina. Sá árangur Lilju og Samstöðu hennar sem mælist nú um fjórðungur alls fylgis er klár vísbending um að nýir tímar séu framundan í stjórnmálum. Því skal ekki haldið fram að þessi verði niðurstaðan hjá Samstöðu í kosningum, en þetta eru skilaboð þjóðar til þings. Það er ástæða til að þakka Lilju Mósesdóttur fyrir að gefa þjóðinni farveg til að sýna öðrum stjórnmálamönnum rauða flaggið. Til hamingju, Lilja.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?