ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Gáfaða fólkið og heimska fólkið

Jón Trausti Reynisson jontrausti@dv.is
10:35 › 10. febrúar 2012
Upplýst forystusveit. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þá menntamálaráðherra, og Bjarni Benediktsson voru bæði forsjál. Eiginmaður hennar flutti hlutabréfin í Kaupþingi og 900 milljóna króna kúlulán sitt yfir í einkahlutafélag í febrúar 2008 og losnaði undan persónulegri ábyrgð. Bjarni Benediktsson seldi hlutabréfin sín í Glitni fyrir rúmar 120 milljónir í sama mánuði.

Upplýst forystusveit. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þá menntamálaráðherra, og Bjarni Benediktsson voru bæði forsjál. Eiginmaður hennar flutti hlutabréfin í Kaupþingi og 900 milljóna króna kúlulán sitt yfir í einkahlutafélag í febrúar 2008 og losnaði undan persónulegri ábyrgð. Bjarni Benediktsson seldi hlutabréfin sín í Glitni fyrir rúmar 120 milljónir í sama mánuði.

Einhvern veginn verður það alltaf þannig að samfélagið skiptist í gáfaða fólkið, sem veit sannleikann, og heimska fólkið, sem veit ekki nóg.

Í hugsjóninni um hinn fullkomna frjálsa markað er gert ráð fyrir því að allir hafi aðgang að sömu upplýsingunum. Lög sem banna innherjaviðskipti eru tilraun til að viðhalda þeirri hugsjón í verki.

Undir lok góðærisins á Íslandi var heimska fólkinu stöðugt sagt að allt væri í lagi. Föðurlegir ráðamenn og trúverðugir bankamenn sögðu það statt og stöðugt. Þeir sem gáfu annað til kynna voru skammaðir, því heimska fólkið höndlaði ekki sannleikann. Það myndi bara gera illt verra. Gáfaða fólkinu var hins vegar sagður sannleikurinn á fundum, því það þurfti að taka mikilvægar ákvarðanir fyrir hálfvitana.

Einn af þeim upplýstu var Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu. Hann sat á fundum með breskum ráðamönnum, sem fjölluðu um að Landsbankinn væri að fara á hliðina, með hrikalegum afleiðingum fyrir íslenska skattgreiðendur. Baldri og félögum mistókst að bjarga íslenskum skattgreiðendum, en Baldur náði í það minnsta að selja hlutabréfin sín í Landsbankanum fyrir 190 milljónir króna mánuði áður en bankinn féll.

Útgerðarkonan Guðbjörg Matthíasdóttir seldi hlutabréfin sín í Glitni fyrir þrjá og hálfan milljarð síðasta virka daginn fyrir fall bankans. En það var vegna samnings sem hafði verið gerður löngu áður. Hún hafði bara vit á að nýta sér hann. Nokkrum mánuðum síðar réð hún seðlabankastjórann, sem hafði varað við hruninu á einkafundum, í ritstjórastól á Morgunblaðinu, sem hún hafði þá nýverið keypt.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er líka einn af gáfaða fólkinu. Eftir að samflokksmenn hans, Davíð Oddsson og Geir Haarde, höfðu rætt hættulega stöðu efnahagslífsins á einkafundi með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, settist Bjarni niður með Illuga Gunnarssyni, stjórnarmanni í Sjóði 9 hjá Glitni og ræddi alvarlega stöðu bankanna. Þeir þingmennirnir tveir úr Sjálfstæðisflokknum skrifuðu grein um yfirvofandi vanda íslensks efnahagslífs. Það var vel gert af þeim. Bjarni passaði sig á að selja 120 milljóna króna hlutabréfin sín í Glitni áður en grein þeirra birtist. Enda var samanlögð þekking Bjarna og Illuga framúrskarandi. Bjarni hafði þá tekið þátt í plotti með Milestone, sem snerist um að bjarga Glitni frá bráðu gjaldþroti. Hann segist reyndar ekki hafa skilið plottið og bara hafa skrifað undir skjöl umbeðinn. Bjarni er auðvitað hneykslaður á því að DV skyldi hafa fjallað um aðkomu hans að viðskiptum. „Helsjúk umræða,“ sagði hann og kallaði á upplýstari borgara til að berjast gegn umræðunni.

Sjóður 9 breyttist í ruslakistu fyrir slæmar eignir Glitnis og keypti meðal annars skuldabréf Milestone, Gnúps og FL Group. Á sama tíma voru starfsmenn Glitnis að hringja í eldri borgara og þá sem vissu ekki neitt, til að fá ævisparnað þeirra inn í Sjóð 9. Um leið heyrðist af því að margir aðstandendur starfsmanna í bönkunum voru svo upplýstir að þeir björguðu sér áður en hrunið kom í ljós.

Í krafti þekkingar sinnar seldi gáfaða fólkið hlutabréfin sín um það leyti sem útvaldir vissu að vandinn væri óumflýjanlegur. Sumt þeirra skipti peningunum sínum yfir í erlenda gjaldmiðla. Annað lagði þá inn á bankabók. Þegar hrunið kom voru skattpeningar almennings notaðir til að bjarga innistæðum gáfaða fólksins. Þeir sem höfðu hins vegar sent peningana sína til útlanda, eða bara skipt yfir í erlenda gjaldmiðla, tvöfölduðu eign sína í krónum.

Hér hafa hinir hæfustu lifað af. Afkoman snerist ekki endilega um að lifa á frjálsum markaði, heldur að vera upplýstur. Og nú er upplýsta fólkið að kaupa upp fasteignirnar okkar, kvótann okkar og fyrirtækin, enda er það útvalið til að taka ákvarðanir fyrir hönd okkar hinna. Þið sem fenguð ykkar upplýsingar frá Lárusi Welding, Ingibjörgu Sólrúnu, Geir Haarde og fréttatímunum, töpuðuð.

---

Úr lögum um innherjaviðskipti
Innherjaupplýsingar:
Með innherjaupplýsingum er átt við nægjanlega tilgreindar upplýsingar sem ekki hafa verið gerðar opinberar og varða beint eða óbeint útgefendur fjármálagerninga, fjármálagerningana sjálfa eða önnur atriði og eru líklegar til að hafa marktæk áhrif á markaðsverð fjármálagerninganna ef opinberaðar væru, eins og nánar er kveðið á um í reglugerð sem sett er skv. 131. gr.

Með innherja er átt við:
1. fruminnherja, þ.e. aðila sem hefur að jafnaði aðgang að innherjaupplýsingum vegna aðildar að stjórn, rekstri eða eftirliti eða vegna annarra starfa á vegum útgefanda fjármálagerninga,
2. tímabundinn innherja, þ.e. aðila sem telst ekki fruminnherji, en býr yfir innherjaupplýsingum vegna eignaraðildar, starfs síns, stöðu eða skyldna, og
3. annan innherja, þ.e. aðila sem hvorki telst fruminnherji né tímabundinn innherji en hefur fengið vitneskju um innherjaupplýsingar, enda hafi viðkomandi vitað eða mátt vita hvers eðlis upplýsingarnar voru.

Innerjasvik:
Innherja er óheimilt að:
1. Afla eða ráðstafa fjármálagerningum með beinum eða óbeinum hætti, fyrir eigin reikning eða annarra, búi hann yfir innherjaupplýsingum.
2. láta þriðja aðila innherjaupplýsingar í té, nema það sé gert í eðlilegu sambandi við starf, stöðu eða skyldur þess sem upplýsingarnar veitir,
3. ráðleggja þriðja aðila á grundvelli innherjaupplýsinga að afla fjármálagerninga eða ráðstafa þeim eða hvetja að öðru leyti til viðskipta með fjármálagerninga





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?