Í annað skipti eftir bankahrunið 2008 tjáði Lýður Guðmundsson, fyrrverandi stjórnarformaður og eigandi almenningshlutafélagsins Exista, sig eftirminnilega á þriðjudaginn. Í fyrra skiptið hélt Lýður harðorða ræðu á aðalfundi Exista í maí 2009. Inntakið í ræðunni var að íslenska efnahagshrunið væri fyrst og fremst afleiðing af alþjóðlegu fjármálakreppunni 2008. Í seinna skiptið skrifaði Lýður grein í Fréttablaðið þar sem hann gagnrýndi sérstakan saksóknara efnahagshrunsins fyrir rannsókn embættisins á tryggingafélaginu VÍS og móðurfélagi þess Exista.
Rétt eins og í fyrri skrifum sínum neitar Lýður að horfast í augu við staðreyndir um þau fjölmörgu brot sem voru framin í íslensku viðskiptalífi á árunum fyrir hrunið og reynir að stilla aðgerðum sérstaks saksóknara upp eins og þær séu byggðar á vondri trú. Í greininni minnist Lýður á þann fjölda mála, 70 talsins, sem FME hefur sent til sérstaks saksóknara frá bankahruninu árið 2008 og segir svo: „Margir hrapa sjálfsagt að þeirri ályktun að þetta sé til merkis um að hér hafi verið rekið fjármálakerfi sem byggðist almennt á óheiðarlegu fólki sem skirrðist ekki við að ganga á svig við lög.“
Lýður hefur greinilega ekki kynnt sér mjög vel þau mál sem vitað er að til rannsóknar eru, meðal annars rannsókn sérstaks saksóknara á meintri markaðsmisnotkun Kaupþings og Glitnis í Al-Thani og Stím-málinu. Staðreyndirnar í þeim málum benda til að stórfelld og úthugsuð lögbrot hafi átt sér stað með hlutabréf í bönkunum. Og þetta eru bara tvö dæmi um mál þar sem lögbrotin nánast blasa við, líkt og þau gerðu í málum Baldurs Guðlaugssonar og Exeter Holdings sem sérstakur saksóknari hefur ákært í nú þegar. Svo eru það öll hin málin sem lenda á borði FME og sérstaks saksóknara þar sem erfiðara gæti reynst að sanna lögbrot en siðleysið, bíræfnin, græðgin og óheiðarleikinn liggja fyrir.
Lýður lætur hjá leggjast í grein sinni að nefna helstu atriðin sem sérstakur saksóknari er að rannsaka í starfsemi VÍS. Meðal annars sex milljarða króna lánveitingu frá tryggingafélaginu til Exista árið 2008 og lán til tengdra aðila eins og Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, eftir efnahagshrunið 2008.
Þar að auki nefnir Lýður auðvitað ekki heldur að þessi Exista-rassía sérstaks saksóknara er ekki sú fyrsta eftir bankahrunið. Í janúar 2010 framkvæmdi sérstakur saksóknari húsleitir í höfuðstöðvum Exista vegna rannsóknar embættisins á niðurfellingu Exista á persónulegum ábyrgðum lykilstarfsmanna félagsins eftri bankahrunið 2008. Starfsmennirnir, meðal annars forstjórarnir Sigurður Valtýsson og Erlendur Hjaltason, höfðu fengið lán upp á samtals 1200 milljónir króna til að kaupa hlutabréf í Exista. Niðurfellingin á persónulegu ábyrgðunum átti sér stað eftir bankahrunið 2008.
Annað dæmi um óheiðarleg viðskipti innan Exista-samstæðunnar er hvernig tugum starfsmanna VÍS var stillt upp við vegg af Exista á vormánuðum 2009 og þeim gert að selja skúffufélagi þeirra Lýðs og Ágústar bróður hans hlutabréf sín í Exista fyrir málamyndaverð. Þá ber að nefna hvernig Lýður og Ágúst létu Exista selja öðru skúffufélagi í þeirra eigu 40 prósent hlut félagsins í Bakkavör með 8.4 milljarða króna seljendaláni frá Existu einum degi fyrir yfirtöku FME á Kaupþingi í byrjun október 2008. Þeim viðskiptum lýsti starfsmaður eins kröfuhafa Exista sem „þjófnaði um hábjartan dag“.
Ein helsta ástæða þess að íslenska efnahagskerfið fór sérstaklega illa út úr hruninu á alþjóðlegum fjármálamörkuðum um haustið 2008 voru slík einmitt viðskipti kaupsýslumanna eins og Lýðs. Þeir létu lána sér óhóflega úr hirslum íslenskra fjármálafyrirtækja í krafti eignarhalds síns á þeim og hugsuðu eingöngu um eigin arðsemi. Íslenska efnahagshrunið var hrun Lýðs og manna af hans sauðahúsi og fyrir það þurfa þeir eðlilega að borga, hvort svo sem það verður með ákærum eða fordæmingu frá almenningi. Óheiðarleiki og græðgi Lýðs var því einmitt ein af ástæðum hrunsins þótt hann vilji ekki viðurkenna það. Lýður þarf að líta sér nær.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Fyrirmyndarfangi
Kjarkur Berglindar
Slímkenndur áróður
Samfélag óttans
Ólafur Ragnar og aðferð Davíðs
