Þingmaðurinn fyrrverandi og auðmaðurinn, Gunnlaugur Sigmundsson, vill að fátækur bloggari og fjölskyldumaður, Teitur Atlason, greiði sem nemur fjórum milljónum króna fyrir ærumeiðingar. Tilefnið er að Teitur gaf til kynna í bloggfærslu að pólitísk áhrif Gunnlaugs hefðu tryggt honum eignarhald á fyrirtækinu Kögun. Allt er umdeilanlegt sem sagt er og skrifað. Það er sjálfsagt og eðlilegt að Gunnlaugur, eins og allir aðrir fái leiðréttingu sinna mála og afsökunarbeiðni ef mál eru þannig vaxin. En það er óboðlegt að hann komist upp með að steypa bloggaranum í fjárhagslega glötun. Það eru engin rök fyrir því að Teitur greiði sem nemur rúmlega árslaunum sínum fyrir þau ummæli sem fram eru borin, eins og Gunnlaugur krefst í stefnu sinni. En auðmaðurinn er í raun að krefjast þess að ungur fjölskyldumaður verði gerður gjaldþrota. Það versta er að málsóknin skiptir þann ríka engu fjárhagslegu máli, hvort sem hann vinnur eða tapar. Hann á mikið meira en nóg og getur eytt milljónum í að berja á öðrum. Aftur á móti eru allar líkur á því að Teitur muni þurfa að leggja út verulega fjármuni, jafnvel þótt hann vinni málið. Fyrir því eru fordæmi. Blaðakonan Erla Hlynsdóttir sem náði í undirrétti að verjast aðför dópsmyglara þurfti samt sem áður að greiða hundruð þúsunda króna vegna varnarinnar. Teitur gæti því verið dæmdur til að tapa, hvernig sem fer fyrir dómi.
Það eru fleiri auðmenn sem hafa lagt upp í málssóknir gegn venjulegu launafólki. Útrásarvíkingurinn Pálmi Haraldsson, kenndur við Fons, er með tvö meiðyrðamál á hendur Svavari Halldórssyni, fréttamanni Ríkisútvarpsins, þar sem hann vill peninga í bætur fyrir frétt sem hafi skaðað æru hans. Jón Ásgeir Jóhannesson, dæmdur athafnamaður, vill sömuleiðis fá peninga frá Svavari ríkisstarfsmanni vegna æruskaða. Þriðji útrásarvíkingurinn, Hreiðar Már Guðjónsson, áður einn nánasti samstarfsmaður þess umdeilda Björgólfs Thors Björgólfssonar, er í tveimur málum gegn starfsmönnum DV og krefst milljóna vegna umfjöllunar um krónuviðskipti hans og samskipti við kunna braskara. Hann hafði hótað að lögsækja DV í nokkrum löndum vegna umfjöllunarinnar sem átti að hafa stórskaðað hann. Hann endaði þó á lögsókn í Reykjavík.
Augljóst er að mönnum með fortíð hefur vaxið kjarkur og áræði eftir því sem lengra líður frá hruni. Nú er komið að upprisu þeirra sem vilja ganga á milli bols og höfuðs á fjölmiðlamönnum. Eignalítið fólk er lögsótt, gjarnan af skrúðkrimmum, með það fyrir augum að steypa því í fjárhagslega glötun og ná þannig fram hefndum. Fjöldi mála í dómskerfinu einkennist af því ofbeldi sem reynt er að ná fram í krafti auðs. Almenningur á Íslandi hlýtur að þurfa að taka afstöðu til þess sem er að gerast með það fyrir augum að stöðva þá aðför sem hinir ríku gera að tjáningarfrelsinu. Gott fólk verður að taka saman höndum gegn föntum sem beita fjárhagslegu valdi sínu gegn venjulegu fólki. Gjaldþrot bloggara og blaðamanna í þágu hefnigjarnra eignamanna mun engum gera gott. Fjölmiðlar mega ekki láta þagga niður í sér með þessum hætti. Íslendingar verða að standa vörð um tjáningarfrelsið.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Fyrirmyndarfangi
Kjarkur Berglindar
Slímkenndur áróður
Samfélag óttans
Ólafur Ragnar og aðferð Davíðs
