ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Gott hjá Besta

07:34 › 9. desember 2011

Það er frábært framtak hjá Besta flokknum að efna til framboðs um allt land. Í sjálfu sér er það rökrétt framhald af stórsigri flokksins í Reykjavík sem var ákall kjósenda um breytingar.

Íslensk stjórnmál eru í þeim ógöngum að engin leið er til þess að sá hópur sem kosinn var á þing geti unnið af heilindum að þjóðarhag. Hver höndin er uppi á móti annarri á meðan þjóðarbúið glímir við þá mestu erfiðleika sem dunið hafa yfir á síðari tímum. Stöðugt argaþras, urr og hvæs einkenna starfið í þinginu. Þar verður ekki gert upp á milli stjórnarliða og þeirra sem eru í stjórnarandstöðu. Kjósendur eru ekki endilega fífl eins og sumir fulltrúar þeirra halda. Það er því komin upp sú staða að almenningi blöskrar og sterkur vilji er uppi um nær algjöra endurnýjun.

Íslenska flokkakerfið hefur um áratugaskeið verið næstum það saman. Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur hafa verið við lýði í hartnær öld. Hinn helmingur fjórflokksins, Samfylkingin og Vinstri grænir, eru spegilmyndir Alþýðuflokksins og Alþýðubandalagsins. Þar hefur fátt breyst. Róttæklingarnir eru í VG en kratarnir eru hinum megin.

Eftir hrunið var reiknað með uppstokkun innan flokkanna. Fólkið í landinu vildi að allir flokkar tækju til innan dyra hjá sér. Það hefur gengið brösuglega. Sjálfstæðisflokkurinn ákvað á landsfundi að setja upp umbótanefnd sem stýrt var af heiðarlegu fólki. Eftir mikla vinnu varð til plagg sem innihélt iðrun og boðskap um nýja tíma. Ætla mátti að Sjálfstæðisflokkurinn væri að ganga til móts við nýja tíma með heiðarleikann og viljann til að gera upp svarta fortíð að leiðarljósi. Þá gerðust þau undur og stórmerki að einn helsti spillingarforkólfur flokksins fór í pontu og rústaði þessu starfi og færði flokkinn aftur á byrjunarreit. Flokknum til varnar er þó rétt að benda á að endurnýjun hefur orðið á æðstu forystu hans en það er reimt í Valhöll. Hjá Framsóknarflokknum hefur orðið gríðarleg tiltekt og gjörspilltum einstaklingum hefur verið fleygt á dyr og nýtt fólk tekið inn.

Vandinn sem stendur eftir er hins vegar sá kúltúr sem er á Alþingi Íslendinga. Rifrildið lifir góðu lífi og tærir upp lýðræðið. Afrakstur þingsins verður enda takmarkaður. Besti flokkurinn hefur sýnt að hann vill breyta til góðs. Þar á bæ hafa menn tekið málefni spillingarbælisins Orkuveitu Reykjavíkur föstum tökum og sett þangað inn menn til að koma skikk á hlutina. Hið sama er uppi á teningnum í rekstri borgarinnar. Þótt mest beri á skemmtilegheitum borgarstjórans er flokkurinn að taka hlutverk sitt alvarlega. Það er ekki slæmur kostur að gefa þessum sjónarmiðum tækifæri til að koma að landsstjórninni. Það er full ástæða til þess að koma stjórnmálunum á annað og betra plan. Valið stendur í raun á milli Davíðs Oddssonar, fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins, og þess sem hann stendur fyrir eða Jóns Gnarr borgarstjóra og þess anda sem hann hefur innleitt í íslensk stjórnmál. Þetta er gott hjá Besta.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?