ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.7° 9m/s S

Lygar trúmanna

Jón Trausti Reynisson jontrausti@dv.is
10:02 › 2. desember 2011

Bæði Karl Sigurbjörnsson biskup og séra Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfirði, byrjuðu aðventuna á því að bera ljúgvitni gegn náungum sínum.

„Það má ekki nefna Jesúnafn í skólum,“ fullyrti Karl biskup í aðventupredikun sinni síðastliðinn sunnudag, sem var útvarpað beint á Rás 1. „Borgarráð bannar það,“ hélt hann áfram. Það er hins vegar ósatt. Borgarráð hefur ekki bannað að nefna nafn Jesú eða annarra. Það hefur hins vegar bannað að börn séu látin fara með bænir í skólanum eða í skólastarfi. Ástæðan er að margir foreldrar vilja ekki að börn þeirra verði fyrir trúarinnrætingu á skólatíma. Foreldrar eru skyldugir til að senda börn sín í skóla og treysta því að þar sé kennd sjálfstæð hugsun og staðreyndir, en ekki blind trú. Þeir sem vilja að börnin fari með bænirnar geta kennt sínum eigin börnum það og farið með þau í messu. Kristin fræði eru hins vegar áfram kennd, og það ekki án þess að nefna Jesúnafn.

Karl líkti borgarráði við Sovétríkin. „Þessir tilburðir hér í Reykjavík minna óhugnanlega á Sovétið sáluga,“ sagði hann. Þar notar hann vel þekkt áróðursbragð, sem kallað hefur verið Reductio ad Hitlerum – eða nasistaþverstæðan. Hún gengur út á að tengja fólk í umræðu við það alversta sem til er, vanalega nasista, Hitler, Stalín eða kommúnista. Þetta veldur sjálfkrafa hughrifum hjá fólki. Það tengir borgarráð við hin alræðissinnuðu og ofbeldisfullu Sovétríki – og um leið Þjóðkirkjuna við hin saklausu fórnarlömb ofríkisins. Í raunveruleikanum snýst málið hins vegar aðeins um að verja ómótuð börn fyrir innrætingu Þjóðkirkjunnar og annarra trúfélaga á skólatíma.

Af sama tilefni fullyrti séra Þórhallur Heimisson að meðlimir Besta flokksins og Samfylkingarinnar hötuðu kristna trú, í bloggfærslu undir heitinu „Bannað að fyrirgefa í skólum Reykjavíkur samkvæmt boði Besta flokksins og Samfylkingar“. Þórhallur viðhélt Sovét-líkingunni og lýsti skólastjórnendum sem viljalausum, óttaslegnum verkfærum, með þeim hætti að þeir óttuðust uppsagnir „og hlýða þess vegna“. Stutt bloggfærsla hans innihélt flest ódýrustu áróðursbrögð sem þekkjast, þar sem Þórhallur gerði andstæðingum sínum upp brenglaðar skoðanir, gjörðir og viðhorf. Hann sagði að „börnum [væri] meinað að forðast hið illa og freistingar sem geta farið illa með þau í lífinu.“

Séra Þórhallur útmálaði meðlimi Besta flokksins og Samfylkingarinnar. Þeir sem trúa honum spyrja sig hvers konar skepnur banna börnum að fyrirgefa og meina þeim að forðast það sem fer illa með þau í lífinu? Um leið og hann sýndi annað fólk sem brenglað og illt lýsti hann sjálfum sér sem hinum fyrirgefandi, miskunnsama manni: „Því segi ég bara: Faðir fyrirgef þessu ofstækisfólki, því þeir vita ekki hvað þeir gjöra.“

Besti flokkurinn hefur boðað þá breyttu stjórnmálaumræðu, að forðast ásakanir á aðra. Hún er mun líklegri til að auka kærleika en trúmenn sem fórna siðferði og sannleika til að viðhalda aðgangi sínum að ómótuðum hugum barna.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?