ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.7° 9m/s S

Ekki jólagjöfin í ár

Jón Trausti Reynisson jontrausti@dv.is
16:34 › 16. desember 2011

Spjaldtölva er ekki jólagjöfin í ár. Samtök verslunar og þjónustu hafa tekið feil.

Þeir sem hafa áhyggjur af því að vera ekki „með“ þessi jólin og fá hvorki né gefa jólagjöfina í ár þurfa að átta sig á því að þetta er ekki jólagjöfin í ár. Á sama tíma og ódýrustu spjaldtölvur á markaðnum kosta rúmar 80 þúsund krónur eyðir hver Íslendingur að meðaltali um 38 þúsund krónum í jólainnkaup. Það er bara hálf spjaldtölva. Og flestir gefa fleirum en einum.

Síðustu þrjú ár hefur fólk eytt minna og minna af peningum í jólagjafir. Jólagjöfin í fyrra var lopapeysa. Jólagjöfin árið 2009 var upplifun. Árið 2008, eftir hrun, var íslensk hönnun jólagjöf ársins. Mesta eyðsluár Íslandssögunnar, árið 2007, völdu Samtök verslunar og þjónustu GPS-staðsetningartæki sem jólagjöf ársins. GPS-tæki kosta miklu minna en spjaldtölvur. Árið 2006, næstmesta sukkárið, var aðaljólagjöfin ávaxta- og grænmetispressa. En nú, á botni kreppunnar, skapast pressa á meiri eyðslu en nokkurn tímann fyrr.

Í rökstuðningi Rannsóknaseturs verslunarinnar segir að nú fari efnishyggja vaxandi: „Í kjölfar hrunsins var því iðulega haldið fram að gildismat Íslendinga hefði breyst í þá átt að efnishyggjan hefði minnkað og samfélagsábyrgð aukist … en samkvæmt nýrri bandarískri könnun virðist slík viðhorfsbreyting vera að ganga til baka þar í landi. Í fyrra var „friður á jörð og almenn hamingja“ efst á óskalistanum en í ár hefur neysluhyggjan tekið yfirhöndina. Samkvæmt könnun samtakanna fyrir þessi jól er „eitthvað nýtt í fataskápinn“ efst á óskalistanum, í öðru sæti er iPad-spjaldtölva og kemur ný inn á þennan árlega óskalista. Í þriðja sæti er fartölva og loks í fjórða sæti óskalistans fyrir þessi jól er „friður á jörð“,“ segir þar.

Fréttin um jólagjöfina í ár var sögð í flestum fjölmiðlum. Þetta verður til þess að ákveðinn hópþrýstingur skapast, gildismatinu er snúið í þá átt að það sé raunverulega eðlilegt og æskilegt að gefa meira en 80 þúsund króna jólagjöf í ár. Það er verið að „normalisera“ ofeyðslu. Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, lýsti því í Morgunútvarpi Rásar 2 á þriðjudag, hvaða áhrif það hefur á fólk ef tíðarandinn felur í sér að „allir eigi að fá spjaldtölvu eða einhvern svona dýran hlut“: „Þú kemst aldrei inn í tíðarandann ef spjaldtölvan er jólagjöfin í ár,“ sagði hún. Enda er spjaldtölva ekki jólagjöfin í ár.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?