Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur á í miklum innri vanda. Jón Bjarnason, ráðherra sjávarútvegs og landbúnaðar, stendur uppi í hárinu á forsætisráðherranum og fjármálaráðherranum sem virðast ekki geta ráðið við hann og haldið aga. Jón hefur átt ágæta spretti í ýmsum málum og unnið sér talsverðrar hylli. Smám saman hefur hann orðið sjálfstæðari og furðulegri í vinnubrögðum sínum. Þetta á ekki síst við um undirbúning að breytingum á kvótakerfinu. Í stað þess að vinna málið í sátt við ríkisstjórnina og í samræmi við stefnuyfirlýsingu hennar stofnaði ráðherrann einkaklúbb utan um hugmyndafræðina. Hann gaf öðrum í stjórninni langt nef með því að taka inn í hópinn þingmanninn Atla Gíslason sem hafði snúið baki við öðrum stjórnarliðum. Til þess að kóróna vitleysuna virtist ráðherrann kominn í eins konar bandalag með stórútgerðarmönnum um að slaka á kröfunni um að þjóðin færi með eignarhaldið. Hann dansar nú við refina.
Jón Bjarnason ráðherra hafði áður sýnt að hann hefur bein í nefinu. Undir fúkyrðum samtaka útgerðarmanna tók hann skötusel og rækju út úr kvóta og lét ríkið leigja hann út. Þá stofnaði hann til dagakerfisins í þágu frelsis. Hann gaf þannig sjómönnum færi á að róa til fiskjar án þess að greiða sægreifum fyrir leyfið til að veiða. Hann beitti sér hart og ákveðið fyrir siðvæðingu þess kerfis sem heldur utan um fiskveiðar á Íslandi. Ráðherrann Jón varð hetja í hugum þeirra sem vildu brjóta upp lénsveldi útgerðarmanna. Hann barðist fyrir litla fólkið.
Enginn veit hvað gerðist síðan hjá ráðherranum. Hann virðist hafa kúvent í afstöðu sinni. Hann sýndi þeim sem trúðu á jákvæðar breytingar fingurinn og hallaði sér að valdinu. Í þeirri stöðu er ekki boðlegt að halda honum inni í ríkisstjórn lengur. Ef leiðtogar stjórnarflokkanna vilja stjórna sínu liði er ekki annað fært en að setja hann út úr stjórninni. Hetjan sem barðist fyrir frelsinu er fallin af stalli. Hún er gengin í lið með hagsmunaöflunum og horfin.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Fyrirmyndarfangi
Kjarkur Berglindar
Slímkenndur áróður
Samfélag óttans
Ólafur Ragnar og aðferð Davíðs
