Fyrirmyndir Íslendinga hafa umturnast síðustu ár samfara breyttum gildum þjóðarinnar eftir lærdóm hennar af hruninu. Árið 2006 valdi þjóðin Silvíu Nótt sem fulltrúa sinn í vinsælustu menningarkeppni Evrópu. Helstu einkenni Silvíu voru græðgi, efnishyggja, óheiðarleiki, sjálfselska og frekja. Þjóðin elskaði hana. Allt í gríni, auðvitað. Ungar stúlkur voru klæddar upp sem Silvía og hegðuðu sér eins og hún í gríni.
Um svipað leyti var Egill „Gillzenegger“ Einarsson vinsæll. Hans helstu gildi voru útlitsdýrkun, sjálfsdýrkun og hlutgerving kvenna. Árið 2007 skrifaði Gillzenegger grínpistil um að láta nafngreindar stjórnmálakonur verða fyrir kynferðislegri valdbeitingu til að þagga niður í þeim. Íslendingar kjósa ekki oft um menningu, en það gerist árlega í tilfelli Eurovision. Árið 2008 valdi stór hluti þjóðarinnar að senda Egil og annað vöðvabúnt bert að ofan til að flytja lagið „Ho ho ho, We say hey hey hey“ í Eurovision-keppninni. Egill og félagar voru ekki langt frá sigri, en enduðu í öðru sæti. Árið 2011 var ákveðið að hann myndi ritstýra Símaskránni, og í takt við áherslur sínar valdi hann að setja mynd af sjálfum sér framan á hana. Allt í gríni þó.
Glysgjarnir bankamenn voru ofurstjörnur. Líklega hafa engir Íslendingar verið dýrkaðir jafnmikið og dáðir af samborgurum sínum og útrásarvíkingarnir. Fátt þótti flottara en bílar Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, mótorhjól Björgólfs Thors Björgólfssonar, einkaþoturnar og veislurnar. Fólk tók bílalán í stórum stíl og keypti hlutabréf með lánum. Fjölmargar, litlar eftirmyndir af útrásarvíkingunum urðu til. Enginn skildi hvernig fyrirmyndirnar gerðu þetta, en nánast allir litu upp til þeirra. Og allir áttu hlutdeild í óútskýrðu, íslensku snilldinni sem lá að baki velgengni þeirra.
Svo breyttist allt. Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson voru valdir menn ársins í íslensku viðskiptalífi árið 2005. Fimm árum síðar var annar þeirra í gæsluvarðhaldi og hinn eftirlýstur af Interpol.
Af hruninu lærðu Íslendingar að upphafnar syndir eins og græðgi, sinnuleysi, sjálfselska, yfirborðsmennska og útlitsdýrkun, væru raunverulega skaðlegar. Lærdómurinn var að ráðdeild, aðhald og sannleikur reyndust vera raunverulega nytsamleg gildi, en ekki bara úreltar og gamaldags hömlur á frelsi okkar.
Árið eftir hrunið voru menn ársins í íslensku viðskiptalífi forsprakkar Fjarðarkaupa, heilbrigðs fyrirtækis sem var andstæða týpískra góðærisfyrirtækja. Það hafði lifað í 37 ár, skuldaði ekki krónu í langtímaskuldum og hagnaður fyrirtækisins var fremur notaður til að styrkja það en til að leyfa eigendunum að skara fram úr í flottræfilshætti. Ráðdeild, aðhald og hófsemd kom í stað græðgi og sjálfselsku.
Árið 2010 var maður ársins í viðskiptalífinu Valdimar Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Kjöríss, fyrir „fagmennsku í rekstri, ráðdeild, dugnað, hófsemi og útsjónarsemi“. Kjörís er 42 ára fjölskyldufyrirtæki sem hefur alltaf verið í eigu sömu aðila og aldrei yfirtekið annað fyrirtæki. Árið 2007 hefði það verið kallað dautt fjármagn, þar sem það hafði ekki verið veðsett upp í topp.
Í fyrra var björgunarsveitarmaðurinn Þórður Guðnason frá Akranesi valinn maður ársins af hlustendum Rásar 2 og Bylgjunnar og hetja ársins af DV, eftir að hann og félagar hans lögðu sig í hættu við að bjarga sjö ára dreng úr sprungu í Langjökli þrátt fyrir hræðilegar aðstæður. Fórnfýsni fremur en sjálfselska.
Í sumar valdi Jón Gnarr Reykvíking ársins. Fyrir valinu varð Gunnlaugur Sigurðsson, 79 ára íbúi í fjölbýlishúsi við Fellsmúla. Ástæðan fyrir valinu var að hann er fyrirmyndarnágranni sem haldið hefur sameign fjölbýlishússins hreinni í marga áratugi, án þess að biðja um neitt í staðinn.
Einn sá sem mest er áberandi í menningunni um þessar mundir er fjölskyldufaðir að vestan, sem ákvað þrátt fyrir vinsældir sínar að gefa fólki tónleika í staðinn fyrir að græða á þeim með miðasölu. Og þegar landsbyggðarfólkið fékk ekki miða á tónleikana ákvað Mugison að breyta einum ókeypis tónleikum í tónleikaröð um landið. Gjafmildi í stað græðgi, upplifun í stað auðsöfnunar.
Hrunið færði okkur ný gildi og nýjar fyrirmyndir.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Fyrirmyndarfangi
Kjarkur Berglindar
Slímkenndur áróður
Samfélag óttans
Ólafur Ragnar og aðferð Davíðs
