Finnur Ingólfsson athafnamaður er á meðal allra umdeildustu Íslendinga. Ferill hans frá stjórnmálum og til viðskipta er þess virði að skoða nánar með forvarnargildi fyrir augum. Almenningur fylgdist með því í forundran hvernig stjórnmálamaðurinn umbreyttist í auðmann án þess þó að hafa sýnilega til þess unnið með elju og dugnaði.
Finnur er með tekjupóst inni á hverju heimili á höfuðborgarsvæðinu. Það er sláandi. Fyrirtæki hans, Frumherji, er með samning við Orkuveitu Reykjavíkur um að eiga alla gjaldmæla vegna hita og rafmagns og viðhalda þeim. Tikkið í mælunum táknar þannig peningana sem jafnt og þétt renna í buddu Finns. Þarna koma saman af óljósum ástæðum hagsmunir opinbers fyrirtækis og einkafyrirtækis stjórnmálamannsins fyrrverandi.
Orkuveitan afhendir Finni og félögum 200 milljónir króna á ári fyrir umsýsluna. Menn geta síðan velt fyrir sér ástæðum þess að Finnur á svona góða innkomu hjá Orkuveitunni sem um árabil var stýrt af spillingarforkólfum Framsóknarflokksins.
Finnur Ingólfsson náði góðum árangri í pólitík undir merki Framsóknarflokksins í þá daga þegar sjálfsagt þótti að flokksbroddar sköruðu eld að sinni köku. Hann komst í þær álnir að verða varaformaður og ráðherra. Hann var einn lykilmanna við uppbyggingu Kárahnjúka og einkavæðingu ríkisfyrirtækja. Í framhaldinu ákvað flokkur Finns að gera hann að seðlabankastjóra sem verður að teljast ein undarlegasta skipun í sögu bankans. En Finnur var órólegur í stóli seðlabankastjóra. Á meðan hann sat fastur á ríkislaunum voru aðrir framsóknarmenn að græða vel, meðal annars undir merkjum S-hópsins. Flokksmenn voru margir hverjir á beit á grösugum lendum gróðærisins.
Seðlabankastjórinn sagði upp og varð forstjóri Vátryggingafélags Íslands. Á undarskömmum tíma varð hann milljarðamæringur. Stjórnmálamaðurinn hafði umbreyst í auðkýfing.
En það eru komnar glufur í gullkistu Finns. Hann hefur neyðst til að veðsetja Íslandsbanka mælana góðu til tryggingar skuldum Frumherja sem eru um 2,4 milljarðar króna. Illur fengur, illa forgengur, kynni einhver að segja. Nýir stjórnendur Orkuveitunnar eiga að fara ofan í samningana um mælana í því skyni að snúa ofan af vitleysu og bruðli í þágu flokksgæðinga. Þeir ættu að losa heimilin við Finn.
Því er ekki haldið fram að Finnur hafi auðgast með ólöglegum hætti. Engin rannsókn hefur farið fram á því fremur en einkavæðingu Búnaðarbankans sem lagði grunn að auði Finns og annarra framsóknarmanna. En það er full ástæða til að fara vandlega yfir feril hans og velta við hverjum steini sem kann að gefa vísbendingu um hvað varð til þess að Finnur fann allt gullið. Og það verður að tryggja að stjórnmálamenn í nútíð og framtíð nýti sér ekki aðgang að eigum almennings til þess að auðgast persónulega.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Fyrirmyndarfangi
Kjarkur Berglindar
Slímkenndur áróður
Samfélag óttans
Ólafur Ragnar og aðferð Davíðs
