ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E

Kjósum svo um kvótann

19:56 › 5. mars 2010

Nauðsynlegt er að sem flestir taki þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni um helgina. Þótt málefnið sem um er kosið sé léttvægt og skipti efnislega engu máli er nauðsynlegt að skapa fordæmi fyrir beinu lýðræði.

Fólk getur litið á kosninguna um helgina sem upphitun fyrir alvörumál. Víst er að langflestir munu segja nei við samningi sem þegar er miklu lakari en það sem í boði er. Og við eigum strax að undirbúa næstu þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún á snúast um eignarhald á fiskistofnum sem tilheyra Íslandi.

Áratugalangar deilur hafa staðið um það hvort réttlætanlegt sé að þröngur hópur manna umgangist auðlindina eins og eigur sínar. Þeir leigja út réttinn og selja hann. Skoðanakannanir sýna að meirihluti þjóðarinnar er andvígur kerfinu. Almenningi er misboðið.

Núverandi stjórnarflokkar eru með róttækar breytingar á stefnuskrá sinni og hafa boðað svokallaða fyrningarleið. Sú grimma umræða sem kom í kjölfar þess að framkvæmd fyrningarinnar er boðuð hefur orðið til þess að eigendur fiskistofnanna koma nú grímulausir fram og heimta staðfestingu þess að þorskurinn sé þeirra eins og allar aðrar fiskitegundir.

Áróður er rekinn neðanjarðar í garð þeirra einstaklinga sem voga sér að hafa þá skoðun að þjóðin eigi fiskistofnana. Heilu fjölmiðlunum er beinlínis beitt í áróðursstríði fyrir útgerðarmenn. Nú er mál að froðusnakkinu linni. Við skulum efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort þjóðin eigi fiskinn í sjónum eða ekki. Þá þarf þjóðin að svara því hvernig rift verður sjálftökunni á fiskimiðunum. Hver einasti kosningabær maður fær að segja sína skoðun á kerfi sem elur af sér húsbændur og þræla.

Það er enginn dómstóll æðri þeim sem felst í hinu beina lýðræði. Kjósum um kvótann.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.