ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

Söguleg yfirlýsing

Jón Trausti Reynisson jontrausti@dv.is
10:17 › 3. mars 2010

Ríkisstjórnin hefur rétt fyrir sér í Icesave-málinu. Því fyrr sem málið klárast, því betra. Tugir milljarða sparast með því að eyða tímabundinni óvissu. Stjórnarandstaðan hefur líka rétt fyrir sér í Icesave-málinu. Samningarnir sem stjórnin hefur gert fram að þessu hafa verið niðurlæging. Við spörum tugi milljarða á betri samningi.
Vandinn er að enginn veit nákvæmlega hver fjárhagsleg niðurstaða verður af kostnaði þess að fresta samþykkt samningsins gegn gróðanum af betri samningi. Sannleikurinn um Icesave er ófyrirsjáanlegur.

Þrjár ríkisstjórnir hafa sýnt vanmátt sinn í samningaviðræðum við Breta og Hollendinga. Enda er ekki við öðru að búast þegar valið er í samninganefndir eftir pólitískri formúlu, meðal annars með Baldri Guðlaugssyni, grunuðum innherjasvikara. Aðkoma stjórnmálaflokkanna að málinu hefur verið háðulega árangurslítil. Aðeins eitt hefur ýtt málinu áfram af fullum krafti. Það er yfirvofandi aðkoma þjóðarinnar að málinu fyrir tilstuðlan Ólafs Ragnars Grímssonar forseta. Vegna hennar hefur Íslendingum boðist mun betri samningur en áður. Hún getur meira að segja haft tilgang án þess að eiga sér stað.

Ólafur Ragnar var svo hallur undir útrásarvíkinga í góðærinu að hann féll fyrir þeim. Ef brot hans nú er að vera lýðskrumari verður að segjast að það er betra að hann liggi flatur fyrir þjóðinni en útrásarvíkingum, eða ríkisstjórninni ef því er að skipta. Kylliflatur fyrir þjóðinni þjónar hann tilgangi á tímum þar sem auknu lýðræði er lofað, en auknu lýðræði er frestað fyrir ýmsa aðra hagsmuni.

Enginn er betri í að gæta hagsmuna þjóðarinnar en þjóðin sjálf. Það leikur hins vegar enginn vafi á því að hún mun gera mistök. Og lýðræðið getur farið út í öfgar. En skárra er að þjóðin kjósi yfir sig eigin mistök en að hún líði fyrir sérhygli og sjálftöku breyskra stjórnmálamanna sem vinna meira að eigin hagsmunum en hagsmunum þjóðarinnar. Áhyggjur af því að fara of langt þýða ekki að maður leggi aldrei af stað.

Icesave-málið virðist geta leitt til þess að ríkisstjórnin hætti samstarfi. Ef svo fer verður það aðeins staðfesting þess að aðstandendur stjórnarinnar voru of vanþroskaðir til að geta tekist á við stóra verkefnið við endurreisn og endurmótun Íslands. Það verður á hinn bóginn ekki staðfesting þess að heppilegt sé fyrir Íslendinga að stjórnarandstöðuflokkarnir standi að endurmótuninni.

Það virðist augljóst að einungis ein niðurstaða geti fengist úr þjóðaratkvæðagreiðslunni. Hún er að samningurinn verði felldur. Því er eðlilegt að líta fyrst og fremst á hana sem ígildi mótmælaskjals gegn ofbeldi Breta og Hollendinga gagnvart almennum borgurum á Íslandi. Hún er staðfesting á því að almenningur eigi að hafa eitthvað um það að segja hvort hann borgi skuldir einkafyrirtækja. Þjóðaratkvæðagreiðslan verður söguleg yfirlýsing hins almenna borgara gegn yfirþjóðlegu auðvaldi nútímans. Hún fellur vel að lýðræðislegri endurmótun Íslands, þar sem áhersla er lögð á vald til fólksins frekar en vald fjármálakerfisins yfir fólkinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.